Ferill 250. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 421 — 250. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um stofnframlög.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu margar íbúðir hafa verið byggðar fyrir stofnframlög, skipt eftir sveitarfélögum, frá samþykkt laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016?
2. Hvað má ætla að margir einstaklingar, miðað við meðalfjölda í hverri íbúð, búi í íbúðum sem byggðar voru fyrir stofnframlög, skipt eftir sveitarfélögum?
Frá því að lög um almennar íbúðir, nr. 52/2016, tóku gildi um mitt ár 2016 hefur stofnframlögum verið úthlutað til byggingar eða kaupa á samtals 4.051 almennri íbúð í 43 sveitarfélögum um allt land. Fram til þessa hafa 2.934 almennar íbúðir verið teknar í notkun í 35 sveitarfélögum víðs vegar um landið.
Stofnframlög eru annars vegar veitt til byggingar og hins vegar til kaupa á almennum íbúðum en fram til þessa hefur stofnframlögum í reynd í flestum tilvikum verið varið til nýbyggingarverkefna. Þannig var sótt um stofnframlag til byggingar í tilviki rúmlega 2/ 3 hluta þeirra íbúða sem hlotið hafa stofnframlög frá upphafi. Þar að auki hefur miklum meiri hluta þeirra stofnframlaga sem veitt hafa verið til kaupa en ekki byggingar verið varið til kaupa á nýbyggingum en ekki eldri íbúðum. Skýrist það af því að mörg húsnæðisfélög innan almenna íbúðakerfisins kjósa að kaupa einstaka íbúðir í nýbyggingarverkefnum á vegum annarra aðila, í því skyni að stuðla að félagslegri blöndun. Í slíkum tilvikum er því sótt um stofnframlag til kaupa í stað stofnframlags til byggingar á viðkomandi íbúð enda þótt um nýbyggingu sé að ræða, þar sem stofnframlagshafinn stendur ekki sjálfur að byggingu íbúðarinnar. Slík íbúðarkaup eru í flestum tilfellum í gegnum kaupréttarsamninga samkvæmt skilmálum við lóðaúthlutanir sveitarfélaga eða í gegnum samninga sem gerðir hafa verið við einstaka byggingaraðila. Sé litið til úthlutunarárs stofnframlaga og byggingarárs þeirra íbúða sem keyptar hafa verið má telja um 3/ 4 hluta íbúða, sem stofnframlag hefur verið veitt til kaupa á, til nýbygginga þar sem íbúðin er byggð sama ár og umsókn um stofnframlag var samþykkt eða síðar. Byggingarár íbúða er skráð þegar íbúðir teljast fokheldar. Af þeim 2.934 almennum íbúðum sem teknar hafa verið í notkun hafa því í reynd 2.575 íbúðir verið byggðar fyrir stofnframlög.
Í eftirfarandi töflu má sjá fjölda almennra íbúða sem hafa verið byggðar fyrir stofnframlög og sem teknar hafa verið í notkun, skipt eftir sveitarfélögum. Í töflunni má sjá bæði fjölda byggðra íbúða og fjölda íbúða sem keyptar hafa verið í nýbyggingum frá samþykkt laga um almennar íbúðir. Einnig má þar sjá áætlaðan fjölda einstaklinga sem búa í íbúðunum sem byggist á tölum Hagstofu Íslands um mannfjölda í sveitarfélögum frá 1. janúar 2025 og fjölda fullbúinna íbúða á sama tíma í hverju sveitarfélagi. Í Akraneskaupstað, svo dæmi sé tekið, eru 68 nýbyggðar íbúðir sem teknar hafa verið í notkun og meðalfjöldi íbúa í hverri íbúð var 2,54 um síðastliðin áramót. Þannig má gera ráð fyrir að 173 einstaklingar búi í íbúðum sem teknar hafa verið í notkun á Akranesi og fjármagnaðar hafa verið með stofnframlögum.
Almennar íbúðir sem byggðar hafa verið fyrir stofnframlög.
| Sveitarfélag | Íbúðir byggðar með stofnframlögum | Íbúðir keyptar í nýbyggingum | Áætlaður fjöldi einstaklinga sem býr í íbúðunum |
| Akraneskaupstaður | 61 | 7 | 173 |
| Akureyrarbær | 50 | 27 | 172 |
| Bolungarvíkurkaupstaður | 14 | 33 | |
| Dalabyggð | 6 | 10 | |
| Dalvíkurbyggð | 8 | 20 | |
| Fjarðabyggð | 25 | 5 | 72 |
| Garðabær | 35 | 5 | 110 |
| Grindavíkurbær | 10 | 0 | |
| Hafnarfjarðarkaupstaður | 181 | 38 | 601 |
| Húnaþing vestra | 5 | 10 | |
| Hveragerðisbær | 10 | 24 | |
| Ísafjarðarbær | 65 | 141 | |
| Kópavogsbær | 14 | 56 | 185 |
| Mosfellsbær | 5 | 3 | 24 |
| Múlaþing | 39 | 1 | 87 |
| Mýrdalshreppur | 4 | 6 | 30 |
| Norðurþing | 7 | 2 | 21 |
| Rangárþing eystra | 4 | 10 | |
| Rangárþing ytra | 9 | 22 | |
| Reykhólahreppur | 6 | 9 | |
| Reykjanesbær | 7 | 14 | 57 |
| Reykjavíkurborg | 1.145 | 559 | 3.918 |
| Seltjarnarnesbær | 6 | 16 | |
| Skaftárhreppur | 6 | 2 | 18 |
| Skagafjörður | 15 | 33 | |
| Snæfellsbær | 5 | 12 | |
| Suðurnesjabær | 16 | 47 | |
| Sveitarfélagið Árborg | 33 | 5 | 93 |
| Sveitarfélagið Hornafjörður | 5 | 14 | |
| Sveitarfélagið Vogar | 7 | 18 | |
| Sveitarfélagið Ölfus | 16 | 45 | |
| Vestmannaeyjabær | 11 | 26 | |
| Vesturbyggð | 4 | 10 | |
| Vopnafjarðarhreppur | 5 | 11 | |
| Þingeyjarsveit | 5 | 1 | 12 |
| Samtals | 1.837 | 738 | 6.152 |