Ferill 347. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.
Þingskjal 425 — 347. mál.
Viðbót. Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um njósnastarfsemi.
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
1. Hvernig hyggst ráðherra styrkja viðnámsþrótt gegn njósnastarfsemi erlendra ríkja hér á landi?
2. Hvaða stofnanir bera ábyrgð á að greina og bregðast við slíkri starfsemi og telur ráðherra að þær hafi til þess nægjanlegar heimildir og úrræði?
3. Hefur farið fram mat á umfangi eða eðli slíkrar starfsemi hér á landi undanfarin ár?
4. Hafa íslensk stjórnvöld átt í samstarfi við stjórnvöld annarra ríkja um mótvægisaðgerðir gegn njósnum, svo sem upplýsingaskipti eða samræmingu á viðbrögðum?
5. Hafa íslenskir ríkisborgarar verið grunaðir um að stunda njósnir fyrir erlent ríki? Ef svo er, hvernig hefur verið brugðist við?
6. Hyggst ráðherra endurskoða gildandi lagaheimildir og verklag í ljósi breyttra öryggisáskorana og þróunar í alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði?
7. Telur ráðherra að gildandi refsiákvæði í almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, vegna njósna fyrir erlent ríki séu fullnægjandi og hefur verið tekin afstaða til þess hvort ástæða sé til að endurskoða þau í samræmi við þróun í nágrannaríkjum, svo sem annars staðar á Norðurlöndum?
Skriflegt svar óskast.