Ferill 46. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.

Þingskjal 46  —  46. mál.
Flutningsmenn.




Tillaga til þingsályktunar


um uppbyggingu Suðurfjarðavegar.


Flm.: Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Þorgrímur Sigmundsson.


    Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að flýta uppbyggingu Suðurfjarðavegar, þ.e. þjóðvegar 1 (Reyðarfjörður–Breiðdalsvík) á austursvæði í samgönguáætlun. Hönnun og útboði á uppbyggingu vegarkaflans verði flýtt og fari fram á yfirstandandi kjörtímabili.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi var áður lögð fram á 152., 153., 154. og 155. löggjafarþingi ( 130. mál). Hún er nú lögð fram að nýju óbreytt.
    Með sameiningu sveitarfélaga í Fjarðabyggð, nú síðast Breiðdalsvík sem sameinaðist Fjarðabyggð árið 2018, telst Suðurfjarðavegur þjóðvegur í þéttbýli. Með kraftmikilli uppbyggingu atvinnulífsins á undanförnum árum hefur umferð aukist á svæðinu, m.a. vegna skóla-, þjónustu- og atvinnusóknar innan sameinaðs sveitarfélags, ferðaþjónustu og síðast en ekki síst stórfelldra vöruflutninga til og frá höfnum svæðisins vegna álframleiðslu, öflugs sjávarútvegs og laxeldis, svo dæmi séu nefnd.
    Ljóst er að Suðurfjarðavegur er mikill farartálmi með hættulegum vegarköflum og þremur einbreiðum brúm, þ.m.t. brúnni yfir Sléttuá í Reyðarfirði sem er umferðarþyngsta einbreiða brúin á Austurlandi. Vegarkaflinn milli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar þykir sérlega hættulegur með mörgum blindhæðum og kröppum beygjum og er auk þess að mestu leyti utan þjónustusvæðis farsímasambands. Suðurfjarðavegur er 33,7 km langur.
    Kaflinn milli Fáskrúðsfjarðar og Breiðdalsvíkur hefur verið metinn áhættumesti vegarkafli landsins í áraraðir í skýrslum EuroRAP um öryggi vega. Í skýrslum EuroRAP er horft til þess hvar flest alvarleg slys verða miðað við umferðarþunga (þ.e. látnir og alvarlega slasaðir á hverja milljón ekna kílómetra). Þá er kaflinn metinn einnar stjörnu vegur af fimm mögulegum í öryggisskoðun EuroRAP, sem metur öryggi vegarins og öryggissvæðisins sem fylgir.
    Á undanförnum árum hafa orðið alvarleg slys á þessum kafla. Í ljósi þess hve hættulegur vegarkaflinn er og með tilliti til ört vaxandi umferðarþunga, m.a. þungaflutninga, þarf að setja Suðurfjarðaveg í forgang í samgönguáætlun.