Ferill 377. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 474 — 377. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um húsnæði Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.
1. Hefur verið gerð þarfagreining á húsnæði Fjölbrautaskóla Suðurnesja?
2. Er stefnt að því að stækka húsnæði skólans, bæði hvað varðar verkmenntastofur og bóklegt nám?
3. Hefur verið haft samráð við bæjarstjórnir á Suðurnesjum hvað húsnæði skólans varðar?
Skriflegt svar óskast.