Ferill 381. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 480  —  381. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um fjárhagsaðstoð til erlendra ríkisborgara.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hver var fjárhæð endurgreiðslna úr ríkissjóði árin 2019–2024 til sveitarfélaga sem veittu fjárhagsaðstoð skv. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga erlendum ríkisborgurum sem ekki áttu lögheimili á Íslandi eða höfðu átt lögheimili hér á landi skemur en tvö ár?
     2.      Hvernig skiptist upphæðin á milli sveitarfélaga?
     3.      Hvernig hefur samráði félags- og húsnæðismálaráðuneytis við dvalarsveitarfélög verið háttað og hvernig veitir ráðuneytið samþykki fyrir veittri fjárhagsaðstoð?
     4.      Hvernig er gengið úr skugga um, áður en fjárhagsaðstoð er veitt, að leitast hafi verið eftir aðstoð frá heimalandi eins og lögin gera að skilyrði?
     5.      Hvernig skiptast útgjöldin eftir ríkisfangi viðtakenda?
     6.      Hyggst ráðherra setja nýjar reglur um aðstoð samkvæmt ákvæðum laganna?


Skriflegt svar óskast.