Ferill 17. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 501  —  17. mál.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um læknanema við erlenda háskóla.


     1.      Hversu margir íslenskir ríkisborgarar leggja stund á grunnnám í læknisfræði við erlenda háskóla og hvernig skiptist fjöldi þeirra á milli landa?
    Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti heldur ekki skrá um nám íslenskra ríkisborgara við erlenda háskóla. Að beiðni ráðuneytisins hefur Menntasjóður námsmanna tekið saman upplýsingar um íslenska læknanema sem hafa á liðnum árum tekið skólagjalda- og framfærslunám við erlenda háskóla.

Þróun á fjölda lánþega í grunnnámi í læknisfræði við erlenda háskóla
Ár
Lönd 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 Fjöldi alls
Bandaríkin 2 2 2 3 1 0 0 0 10
Læknisfræði 1 1 1 1 0 0 0 0 4
Tannlækningar 1 1 1 2 1 0 0 0 6
Danmörk 24 24 23 30 35 39 41 28 244
Dýralækningar 7 6 6 3 5 5 3 3 38
Læknisfræði 17 17 17 26 29 34 38 25 203
Tannlækningar 1 0 1 1 0 0 0 3
England 1 1 1 0 0 0 3
Læknisfræði 1 1 1 0 0 0 3
Ítalía 2 2 2 0 2 1 2 11
Læknisfræði 2 2 2 0 2 1 2 11
Króatía 2 2
Læknisfræði 2 2
Kýpur 1 2 4 6 7 8 6 8 42
Læknisfræði 1 2 4 6 6 6 4 4 33
Tannlækningar 1 2 2 4 9
Litáen 1 1
Tannlækningar 1 1
Noregur 7 7 5 4 5 5 4 3 40
Dýralækningar 6 7 5 4 4 5 4 3 38
Líflæknisfræði 1 0 0 0 1
Læknisfræði 1 0 0 0 1
Pólland 3 3 4 4 4 4 3 3 28
Dýralækningar 1 1 1 2 5
Læknisfræði 3 3 4 4 3 3 2 1 23
Skotland 1 1 2
Læknisfræði 1 1 2
Slóvakía 99 121 131 135 176 178 188 190 1.218
Dýralækningar 11 18 18 15 21 21 28 23 55
Læknisfræði 88 103 113 120 155 157 160 167 1.063
Spánn 4 5 6 6 6 3 5 10 45
Dýralækningar 4 5 6 6 5 2 5 6 39
Tannlækningar 1 1 0 4 6
Svíþjóð 1 1 0 0 1 0 1 1 5
Líflæknisfræði 1 1 0 0 1 0 1 1 5
Tékkland 1 0 0 1 1 3
Læknisfræði 1 0 0 1 1 3
Ungverjaland 80 64 53 42 35 29 27 21 351
Dýralækningar 4 3 2 2 4 4 4 3 26
Læknisfræði 71 57 46 35 28 21 17 10 285
Tannlækningar 5 4 5 5 3 4 6 8 40
Þýskaland 1 2 2 2 1 8
Dýralækningar 1 1 2 2 1 7
Læknisfræði 1 0 0 0 1
Heildarfjöldi 223 232 231 234 273 270 280 270 2.013

     2.      Hver eru skólagjöld þeirra á ári að meðaltali annars vegar og miðgildi hins vegar? Svar óskast sundurliðað eftir námslöndum.
    Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti býr ekki yfir upplýsingum um fjárhæð skólagjalda íslenskra læknanema í grunnnámi við erlenda háskóla. Að beiðni ráðuneytisins hefur Menntasjóður námsmanna tekið saman upplýsingar um meðaltal veittra skólagjaldalána íslenska læknanema við erlenda háskóla.

Meðaltal skólagjaldalána á einstakling
2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 Meðaltal
Bandaríkin 2.632.427 3.423.447 2.148.662 2.430.461 2.961.050 2.666.150
Læknisfræði 1.800.575 1.396.619 1.541.858 1.804.322 1.635.844
Tannlækningar 3.464.279 5.450.274 2.755.465 2.743.530 2.961.050 3.353.021
Danmörk 1.041.308 874.944 1.026.859 1.119.532 1.276.012 1.325.457 1.623.819 1.774.613 1.294.315
Dýralækningar 1.262.690 1.226.792 1.357.175 1.526.457 1.596.845 1.582.342 1.709.129 1.894.957 1.463.952
Læknisfræði 950.150 797.629 910.277 1.079.064 1.241.538 1.287.680 1.617.084 1.760.171 1.273.310
Tannlækningar 78.223 950.918 671.599 566.913
England 1.815.139 2.355.045 618.500 1.596.228
Læknisfræði 1.815.139 2.355.045 618.500 1.596.228
Ítalía 1.700.805 2.119.724 2.506.486 2.966.318 4.250.360 4.622.283 2.916.508
Læknisfræði 1.700.805 2.119.724 2.506.486 2.966.318 4.250.360 4.622.283 2.916.508
Króatía 1.627.270 1.627.270
Læknisfræði 1.627.270 1.627.270
Kýpur 2.469.322 2.660.030 2.378.014 2.606.236 3.467.782 2.941.003 3.559.892 3.524.988 3.102.395
Læknisfræði 2.469.322 2.660.030 2.378.014 2.606.236 3.416.607 2.914.456 3.263.704 3.168.456 2.928.905
Tannlækningar 3.774.833 3.020.644 4.152.267 3.881.521 3.738.526
Litáen 4.227.680 4.227.680
Tannlækningar 4.227.680 4.227.680
Noregur 971.192 1.022.160 1.358.905 1.463.009 1.113.849 1.677.086 1.325.348 1.848.392 1.285.032
Dýralækningar 919.234 1.022.160 1.358.905 1.463.009 1.025.663 1.677.086 1.325.348 1.848.392 1.280.309
Líflæknisfræði 1.282.943 1.282.943
Læknisfræði 1.466.595 1.466.595
Pólland 1.715.889 1.800.592 1.659.512 2.286.887 3.108.792 2.626.473 2.006.689 2.014.185 2.190.668
Dýralækningar 2.774.355 1.696.400 1.365.249 2.287.144 2.082.058
Læknisfræði 1.715.889 1.800.592 1.659.512 2.286.887 3.220.271 2.936.497 2.327.410 1.468.266 2.214.279
Skotland 2.244.309 2.439.500 2.341.905
Læknisfræði 2.244.309 2.439.500 2.341.905
Slóvakía 1.805.920 1.745.562 1.908.349 2.151.091 2.799.602 2.731.581 2.944.686 3.125.560 2.509.687
Dýralækningar 1.580.422 1.667.450 1.882.357 2.047.030 2.624.862 2.649.248 2.430.617 2.743.871 2.283.285
Læknisfræði 1.834.108 1.759.213 1.912.489 2.164.099 2.823.276 2.742.594 3.034.648 3.178.128 2.542.700
Spánn 2.163.999 2.496.302 2.660.445 2.349.402 1.826.221 2.937.545 3.137.563 3.555.340 2.715.728
Dýralækningar 2.163.999 2.496.302 2.660.445 2.349.402 1.497.285 2.498.187 3.137.563 3.901.920 2.635.352
Tannlækningar 3.470.899 3.816.260 3.035.470 3.238.173
Svíþjóð 1.044.412 932.485 1.750.500 2.002.580 2.189.980 1.583.991
Líflæknisfræði 1.044.412 932.485 1.750.500 2.002.580 2.189.980 1.583.991
Tékkland 1.583.363 3.073.765 4.348.725 3.001.951
Læknisfræði 1.583.363 3.073.765 4.348.725 3.001.951
Ungverjaland 1.665.174 1.709.125 1.908.184 2.145.500 2.553.569 2.725.142 2.693.770 3.135.272 2.110.596
Dýralækningar 2.189.445 1.881.054 2.484.780 1.899.219 2.509.303 2.775.696 2.692.033 2.147.038 2.366.084
Læknisfræði 1.577.700 1.625.049 1.876.244 2.151.316 2.509.895 2.756.267 2.432.736 3.126.351 1.989.567
Tannlækningar 2.487.878 2.778.273 1.971.394 2.203.297 3.020.218 2.511.178 3.434.526 3.517.012 2.806.864
Þýskaland 745.672 1.373.673 1.153.707 1.421.806 643.025 1.160.884
Dýralækningar 745.672 1.755.500 1.153.707 1.421.806 643.025 1.185.032
Læknisfræði 991.845 991.845
Heildarsumma 1.657.518 1.658.269 1.835.517 2.026.636 2.520.435 2.505.242 2.698.902 2.991.929 2.275.504

     3.      Hvert er viðhorf ráðherra til þess að læknanemar sem stunda grunnnám í læknisfræði við erlenda háskóla fái hluta af námslánum sínum felldan niður gegn því að þeir skuldbindi sig til þess að starfa í íslensku heilbrigðiskerfi?
    Viðhorf ráðherra er að beiting slíkra úrræða þarf standast lögmætisreglu stjórnsýsluréttarins og jafnræðisreglu Stjórnarskrárinnar. Lagabreytingu þyrfti til að koma slíku úrræði til framkvæmda og það stæðist vart jafnræðisreglu Stjórnarskrárinnar að veita einni námsgrein slíkan forgang í lögum. Þá þarf að fjármagna slík úrræði sérstaklega með auknum fjárheimildum til handa Menntasjóði námsmanna í fjárlögum. Veitt skólagjaldalán frá Menntasjóði námsmanna vegna grunnnáms í læknisfræði og tengdum greinum við erlenda háskóla yfir tímabilið 2016–2023 námu í árslok 2023 tæpum tveimur milljörðum króna, sem þyrfti þá að taka tillit til í fjármögnun slíks úrræðis.
    Úrræði líkt og því sem hér er spurt um er þegar í 27. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020. Þar er kveðið á um heimild til að ákveða sérstaka tímabundna ívilnun við endurgreiðslu námslána vegna tiltekinna námsgreina. Skilyrði fyrir beitingu ákvæðisins er að upplýsingar liggi fyrir um viðvarandi skort í starfsstétt eða að skortur sé fyrirsjáanlegur, og að fyrir liggi skýrsla unnin af stjórnvöldum í samráði við hlutaðeigandi atvinnurekendur um mikilvægi þess að bregðast við slíkum aðstæðum. Þá þarf að tryggja að ívilnun leiði til þess að þeir sem ljúki námi í námsgreininni nýti menntun sína til starfa í starfsstétt þar sem skilgreind mannaflsþörf liggur fyrir og að fjármagn sé aukið til Menntasjóðs námsmanna til að standa undir ívilnuninni. Enn sem komið er hefur ráðherra ekki borist erindi um heimild til nýtingar á ívilnun skv. 27. gr. laga um Menntasjóð námsmanna. Til skoðunar er að nýta þá heimild sem kemur fram í 28. gr laga um Menntasjóð námsmanna um sérstakar ívilnanir vegna námsgreina á sérstökum svæðum. Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samráði við ráðuneytið vinna nú skýrslu með greiningu á mönnunarþörf heilbrigðisstétta eftir landshlutum og tillögur um beitingu ívilnana á þeim grundvelli.

     4.      Hvaða reglur gilda um inntöku læknanema í starfsnám hjá íslenskum heilbrigðisstofnunum (sérnámsgrunnsár)? Eru nemendur við erlenda háskóla jafnsettir þeim sem hafa stundað grunnnám á Íslandi?
    Þessi spurning varðar atriði sem fjallað er um í lögum um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, og reglugerðum settum samkvæmt þeim lögum. Samkvæmt o-lið 3. tölul. 6. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 5/2025, heyrir þessi hluti fyrirspurnarinnar undir heilbrigðisráðherra.