Ferill 397. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 511 — 397. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um kaup ríkisins á húsnæði í Grindavík.
Frá Gísla Stefánssyni.
1. Hver er áætlaður kostnaður ríkisins vegna Þórkötlu og kaupa ríkisins á húsnæði í Grindavík árið 2025 og hvernig er áætlað að hann þróist á komandi árum?
2. Hefur ráðherra í hyggju að grípa til einhverra ráðstafana til að brottfluttir Grindvíkingar geti snúið aftur heim og draga þar með úr fjárútlátum hins opinbera vegna húsnæðiskaupa ríkisins í Grindavík.
Skriflegt svar óskast.