Ferill 400. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 515  —  400. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um flutningsgjald, orkuinnviði og orkuöflun.

Frá Gísla Stefánssyni.


     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir aðgerðum til þess að koma í veg fyrir að ákveðin svæði verði fyrir hækkun á flutningsgjaldi raforku þegar orkunotkun dregst saman?
     2.      Kemur til greina af hálfu ráðherra að ríkið komi að fjárfestingum í orkuinnviðum á þeim svæðum?
     3.      Ætlar ráðherra að beita sér fyrir aukinni orkuöflun í nærumhverfi Vestmannaeyja með það fyrir augum að auka orkuöryggi og stuðla að orkuskiptum, t.d. í samstarfi við einkaaðila í Vestmannaeyjum?
     4.      Hyggst ráðherra tryggja fjarvarmaveitum orku á rekstrarhæfu verði til að auka samkeppnishæfni kaldra svæða og jafna þannig aðstæður fólks og fyrirtækja óháð staðsetningu? Ef svo er, hvenær hyggst ráðherra ráðast í aðgerðir og hverjar verða þær?


Skriflegt svar óskast.