Ferill 423. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 578 — 423. mál.
Fyrirspurn
til atvinnuvegaráðherra um mat á áhrifum lagasetningar á samkeppni.
Frá Ragnhildi Jónsdóttur.
1. Hvernig er mat á áhrifum lagasetningar á samkeppni framkvæmt?
2. Er til leiðarvísir eða greiningarrammi sem stjórnsýslan styðst við þegar slíkt mat er gert? Ef svo er, hvar má nálgast slíkan leiðarvísi eða greiningarramma? Eru þessi tæki nýtt með kerfisbundnum hætti?
3. Er stefnt að því að útbúa slíkan leiðarvísi eða greiningarramma ef hann er ekki þegar til?
Skriflegt svar óskast.