Ferill 424. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 579 — 424. mál.
Fyrirspurn
til félags- og húsnæðismálaráðherra um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins og mannfjölda.
Frá Rósu Guðbjartsdóttur.
1. Hvernig hefur mannfjöldi á höfuðborgarsvæðinu þróast miðað við þær forsendur sem lágu til grundvallar svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015–2040 sem var afgreitt af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu árið 2015?
2. Telur ráðherra tilefni til þess að endurskoða vaxtarmörk svæðisskipulagsins í ljósi mannfjöldaþróunar?
3. Er einhver vinna í gangi í ráðuneytinu sem miðar að því að einfalda breytingar á vaxtarmörkum svæðisskipulagsins og afnema neitunarvald einstakra sveitarfélaga?
Skriflegt svar óskast.