Ferill 247. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 591 — 247. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um netsölu áfengis.
1. Telur ráðherra nauðsynlegt að grípa til einhverra aðgerða, með hliðsjón af lýðheilsu- og forvarnasjónarmiðum, vegna netsölu áfengis og afhendingar þess til neytenda í fjölda verslana, annarra en verslana ÁTVR?
Ráðuneytið bendir á að fjallað er um hlutverk ÁTVR í lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 86/2011, en þau heyra undir fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. b-lið 10. tölul. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 5/2025. Það er því bæði rétt og skylt að fjármála- og efnahagsráðherra, sem fer með umrætt stjórnarmálefni, svari fyrirspurn um netsölu áfengis og afhendingar þess til neytenda í samræmi við hlutverk sitt.
Heilbrigðisráðherra fer með málaflokk lýðheilsu og forvarna, þar með talið áfengis- og vímuvarnir, og ber m.a. ábyrgð á framfylgd lýðheilsustefnu til ársins en hefur hins vegar ekki úrræði til að bregðast við netsölu áfengis á Íslandi. Ráðherra telur aftur á móti mikilvægt að eyða þeirri lagalegu óvissu sem ríkir varðandi netsölu áfengis. Enn fremur telur ráðherra mikilvægt að nýta gagnreynd úrræði til að draga úr skaðsemi áfengis en þau eru t.d. takmarkað aðgengi, takmörkuð markaðssetning og verðstýring. Framangreind úrræði eru jafnframt áréttuð í nýlegri skýrslu Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar þar sem fjallað er um einkasölu ríkisins á áfengi á Norðurlöndunum.
2. Telur ráðherra að framangreind sala og afhending áfengis sé í samræmi við gildandi áfengis- og vímuvarnastefnu og gildandi lýðheilsustefnu?
Sú stefna í áfengis- og vímuvörnum sem unnið hefur verið eftir undanfarin ár er frá árinu 2013. Árið 2024 skipaði ráðherra starfshóp sem var falið það verkefni að uppfæra heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum og er vinna hópsins yfirstandandi. Það er mat ráðherra að netsala áfengis sé ekki í samræmi við hina eldri stefnu og að öllum líkindum muni hið sama eiga við hina nýju stefnu. Í júní 2021 var tillaga ráðherra til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030 samþykkt á Alþingi með öllum greiddum atkvæðum. Með lýðheilsu er vísað til heilsueflingar og forvarna sem miða að því að viðhalda og bæta heilbrigði fólks og koma í veg fyrir sjúkdóma eins og kostur er. Stóraukið aðgengi að áfengi með opnun netverslana vinnur beinlínis gegn þeirri framtíðarsýn sem Alþingi hefur sett með samþykk i fyrrnefndrar þingsályktunar.