Ferill 248. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 592  —  248. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um lýðheilsumat og ÁTVR.


     1.      Kemur til álita að mati ráðherra að leggja niður ÁTVR án þess að fyrst fari fram heildstætt lýðheilsumat?
    Ekki eru uppi áform um að leggja niður ÁTVR en að mati ráðherra kæmi ekki til greina að leggja niður ÁTVR án undanfarandi lýðheilsumats.
    Ráðuneytið bendir að öðru leyti á að fjallað er um hlutverk ÁTVR í lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 86/2011, en þau heyra undir fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. b-lið 10. tölul. 5. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 5/2025. Ákvörðun um að leggja ÁTVR niður heyrir samkvæmt framangreindu undir fjármála- og efnahagsráðherra. Því er bæði rétt og skylt að fjármála- og efnahagsráðherra, sem fer með umrætt stjórnarmálefni, svari fyrirspurninni í samræmi við hlutverk sitt.

     2.      Verði af gerð slíks lýðheilsumats, undir hvaða ráðuneyti ætti að vinna það?
    Ráðherra hefur sett af stað vinnu á við mótun lýðheilsumats, líkt og á við um mat á jafnréttisáhrifum lagasetningar. Ef lýðheilsumat verður fest í sessi verður það á ábyrgð þess ráðherra sem leggur fram frumvarp til lagabreytinga að framkvæma lýðheilsumat.