Ferill 6. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 637 — 6. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um Fasteignir sjúkrahúsa ohf.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Reitum fasteignafélagi hf., Landspítalanum og Nýjum Landspítala ohf. Nefndinni bárust fjórar umsagnir, sem aðgengilegar eru undir málinu á vef þingsins. Að auki barst nefndinni tölvupóstur frá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum (FSRE) sem var ígildi umsagnar.
Tilgangur frumvarpsins.
Tilgangur frumvarpsins er í stórum dráttum tvíþættur. Annars vegar er nauðsynlegt að uppfæra núverandi lög um byggingu nýs Landspítala, sem eru frá árinu 2010, og síðan þá hafa verkefni félagsins þróast og breyst og nauðsynlegt að taka mið af því í lagasetningu.
Hins vegar er í frumvarpinu heimild til að færa til félagsins fasteignir sem nú eru nýttar til annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu. Þriðja stigs heilbrigðisþjónusta er skilgreind þjónusta sem veitt er á sjúkrahúsi og krefst sérstakrar kunnáttu, háþróaðrar tækni, dýrra og vandmeðfarinna lyfja og aðgengis að gjörgæslu. Jafnframt er veitt heimild til að færa eignarhald og umsýslu fasteigna sem nýttar eru undir annars stigs heilbrigðisþjónustu til félagsins sem yrði þá miðlægur eignaumsýsluaðili með fasteignum sjúkrahúsa sem sinnir sambærilegu hlutverki og Fasteignir Háskóla Íslands ehf. gera með eignir Háskólans.
Er það gert til að tryggja fjárhagslegt gagnsæi við fasteignareksturinn og til að samræmt utanumhald gildi gagnvart viðhaldi og endurbótum og komi þannig í veg fyrir að viðhaldsskuld myndist með tilheyrandi kostnaði og óhagræði. Samhliða mun viðkomandi rekstraraðili, í þessu tilfelli Landspítalinn og Sjúkrahúsið á Akureyri, einbeita sér að sinni kjarnastarfsemi sem er heilbrigðisstarfsemi.
Um langt skeið hefur verið unnið að því að færa allar fasteignir í eigu ríkisins undir miðlæga umsýslu til að tryggja faglega og samræmda umsýslu eigna í samræmi við stefnu í eignamálum ríkisins. Þar af leiðandi heyrir það til undantekninga að fasteignir í eigu ríkisins séu í beinni umsýslu notenda. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) er sú stofnun sem fer með almenna umsýslu fasteigna í eigu ríkisins og sérhæfir sig í viðhaldi og umsýslu fasteigna gegn leigugreiðslum stofnana.
Með því að taka upp innri leigu í starfsemi ríkisins sem endurspeglar verðmæti eignar er verið að auka fjárhagslegt gagnsæi við húsnæðisrekstur hins opinbera. Við yfirfærslu fasteigna til félagsins er ætlunin að hækka fjárheimildir sem nemur leigugjaldinu, þannig að breytingin hafi ekki áhrif á afkomu sjúkrahúsanna.
Almennt er miðað við að leigugjaldið endurspegli stofnkostnað, umsýslukostnað, opinber gjöld, kostnað vegna viðhalds og endurbóta, afskriftir og fjármagnskostnað.
Umfjöllun nefndarinnar.
Ef frumvarpið verður samþykkt og fasteignir sjúkrahúsa færðar yfir til félagsins verða meira en 900 þús. fm af fasteignum innan þriggja fasteignafélaga ríkisins. Langmest að umfangi eru eignir í umsjón FSRE eða tæplega 600 þús. fm. Því næst Fasteignir sjúkrahúsa ohf. sem mun vera með meira en 250 þús. fm þegar byggingar nýs Landspítala verða komnar í rekstur. Fasteignafélag Háskóla Íslands er síðan með um 100 þús. fm í umsjón sinni. Til viðbótar eru nokkrar stofnanir í leiguhúsnæði á almennum markaði.
Meiri hlutinn er sammála þeim meginmarkmiðum sem fram koma í greinargerð frumvarpsins, sem er að uppfylla þau grunnsjónarmið sem koma fram í lögum um opinber fjármál um sérhæfða eignaumsýslu og fjárhagslegt gagnsæi við húsnæðisrekstur. Breyttu fyrirkomulagi er ætlað að tryggja að nauðsynleg sérþekking sé til staðar í tengslum við viðhald og umsýslu sérhæfðra eigna og koma í veg fyrir að viðhaldsskuld geti myndast í fasteignarekstrinum.
Á fundum nefndarinnar hafa komið fram nokkur atriði og álitamál sem meiri hlutinn telur rétt að benda sérstaklega á og nauðsynlegt er að hafa í huga þegar kemur að ákvarðanatöku í kjölfarið á afgreiðslu Alþingis á frumvarpinu:
– Tilvist félagsins kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að þróa fjölbreyttar leiðir við nýbyggingar á heilbrigðissviði, t.d. með samstarfi einkaaðila og ríkisins. Þetta á ekki síst við um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Sú þjónusta er ekki á verksviði Fasteigna sjúkrahúsa ohf.
– Leita þarf allra leiða til að ná sem mestri rekstrarhagkvæmni í tengslum við fasteignaumsjón. Í því sambandi er nauðsynlegt að verkaskipting milli leigusala og leigutaka sé mjög skýr, t.d. varðandi minni háttar viðhald. Annars er hætt við tvíverknaði í starfsmannahaldi.
– Bent er á að það er mikil hagkvæmni stærðar til staðar í rekstri fasteigna. Hjá FSRE starfa samtals um 75 manns og þar af eru 12 manns sem eingöngu sinna umsjón með fasteignum sem samtals eru 584 þús. fm að stærð. Á undanförnum árum hafa þau störf krafist stöðugt meiri sérþekkingar og starfsþjálfunar. Þar er ljóst að nær ómögulegt er að tryggja gæði og öryggi við fasteignauppbyggingu í smáum starfseiningum. Fasteignaumsjón FSRE nýtur líka góðs af aðgengi að allri stoðþjónustu innan stofnunarinnar varðandi fjármál og uppgjör, starfsmannahald, lögfræði, gæða- og skjalastjórnun og rekstur upplýsingakerfa. Í ljósi þessa má rökstyðja að Fasteignir Háskóla Íslands ehf. sé tæplega nægilega umfangsmikið til þess að starfa sem sérstakt félag og ætti frekar að vera hluti af fasteignaumsjón FSRE.
– Fram hafa komið efasemdir um að besta fyrirkomulagið á fasteignaumsjón og rekstri ríkisins sé í formi opinbers hlutafélags. Benda má á að FSRE er stærsta fasteignaumsjónarfélag ríkisins en er rekið í formi A-hluta stofnunar.
Breytingartillögur.
Fjárstjórnarvald (2. mgr. 1. gr.).
Tryggja þarf að fjárstjórnarvaldið sé áfram hjá Alþingi varðandi allar nýbyggingar og meiri háttar framkvæmdir vegna sjúkrahúsa. Þrátt fyrir yfirfærslu húsnæðis til félagsins þarf eftir sem áður að fjármagna nýjar framkvæmdir á fjárlögum og koma þær því til kasta Alþingis.
Meiri hlutinn leggur því til breytingu þess efnis að áréttað sé að fjárheimildir til verkefna félagsins séu á ábyrgð þess ráðherra sem fer með heilbrigðismál.
Samspil stefnumörkunar heilbrigðisráðuneytis og félagsins (2. gr.).
Meiri hlutinn telur nauðsynlegt að styrkja samspil stefnumörkunar heilbrigðisráðuneytisins við fasteignaþróun sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana. Reynslan af stýrihópi vegna verkefna Nýs Landspítala hefur verið góð. Á vegum hópsins hafa verið gerðar þarfagreiningar og áætlanir sem bornar eru undir heilbrigðisráðherra og Nýjum Landspítala ohf. falin framkvæmdin. Með þessum hætti hefur stýrihópurinn unnið að uppbyggingu Nýs Landspítala ásamt öðrum verkefnum með þróun heilbrigðismála að leiðarljósi.
Að teknu tilliti til framangreinds leggur meiri hlutinn til tvær breytingar á 2. gr. frumvarpsins til að styrkja betur tengsl félagsins við stefnumörkun heilbrigðisráðuneytisins.
Stjórn félagsins (4. gr.).
Í 4. gr. frumvarpsins er kveðið á um stjórn félagsins. Í skýringum við ákvæðið í greinargerð segir að val á stjórnarmönnum verði frekar útfært í samþykktum félagsins til að tryggja ákveðinn sveigjanleika við að skipa í stjórn eftir því hvernig verkefni félagsins þróast. Þá kemur fram að til greina komi að heilbrigðisráðherra verði gefinn kostur á að koma með tillögur að stjórnarmönnum í félagið sem yrði útfært nánar í samþykktum þess.
Meiri hlutinn telur nauðsynlegt að tryggja aðkomu heilbrigðisráðuneytisins að stjórninni í því skyni að stefnumörkun ráðuneytisins í málaflokknum skili sér í fasteignaþróun sjúkrahúsa. Leggur meiri hlutinn því til breytingu á 4. gr. sem kveður á um að einn stjórnarmaður félagsins að lágmarki skuli skipaður samkvæmt tillögu þess ráðherra sem fer með heilbrigðismál.
Jafnframt áréttar meiri hlutinn mikilvægi þess að aðrir stjórnarmenn félagsins búi yfir sérfræðiþekkingu á fasteignaumsjón og ekki sé æskilegt að fulltrúar leigutaka eigi aðild að stjórninni.
Auk þess leggur meiri hlutinn til nokkrar minni háttar orðalagsbreytingar á 3. og 5. gr. frumvarpsins.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Við 2. mgr. 1. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Fjárheimildir til verkefna félagsins eru á ábyrgð þess ráðherra sem fer með heilbrigðismál.
2. Við 2. mgr. 2. gr.
a. Í stað 1. málsl. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Verkefni félagsins skulu vera í fullu samræmi við heilbrigðisstefnu og stefnumörkun heilbrigðisráðuneytisins varðandi uppbyggingu heilbrigðisþjónustu. Verkefnin eru einkum eftirfarandi:
b. Við d-lið bætist: í nánu samstarfi við veitendur heilbrigðisþjónustu.
3. Við 2. mgr. 3. gr.
a. Í stað orðanna „Eignaumsýsla skal vera fagleg og uppfylla“ í a-lið komi: Fagleg eignaumsýsla sem uppfyllir.
b. Í stað orðanna „Gæta að hagkvæmni og sveigjanleika“ í b-lið komi: Hagkvæmni og sveigjanleiki.
c. Í stað orðanna „Leigugjald skal vera gagnsætt og taka“ í c-lið komi: Gagnsætt leigugjald sem tekur.
d. Í stað orðanna „Tryggja að góð tengsl séu“ í d-lið komi: Góð tengsl tryggð.
e. Í stað orðanna „Eiga samstarf“ í e-lið komi: Samstarf.
4. 1. málsl. 4. gr. orðist svo: Stjórn félagsins skal skipuð þremur til fimm einstaklingum, þar af að lágmarki einum samkvæmt tillögu ráðherra sem fer með heilbrigðismál, og skal val þeirra staðfest á aðalfundi ár hvert af ráðherra.
5. Við 3. mgr. 5. gr. bætist: sem fasteignafélags.
Alþingi, 4. júní 2025.
| Ragnar Þór Ingólfsson, form. |
Dagur B. Eggertsson, frsm. |
Arna Lára Jónsdóttir. | |
| Eiríkur Björn Björgvinsson. | Heiða Ingimarsdóttir. | ||