Ferill 447. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 641 — 447. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um samninga við félagasamtök.
Frá Jóni Pétri Zimsen.
1. Hvaða félagasamtök höfðu í gildi þjónustu-, rekstrar- eða rammasamning við ráðuneytið sl. 10 ár og hver var fjárhæð greiðslna úr ríkissjóði til þessara félaga á grundvelli slíkra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi, eðli samnings og ári.
2. Hverjar voru heildartekjur hvers félags sem um ræðir í 1. tölul. á sama tímabili og hvert var hlutfall samningsbundinna framlaga úr ríkissjóði af tekjum hvers þeirra á grundvelli umræddra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
3. Í hvaða erlenda styrktarsjóði, sem félagasamtök á Íslandi geta sótt um styrki úr, á málefnasviði ráðherra greiðir íslenska ríkið og hver var fjárhæð framlags Íslands í hvern þessara sjóða sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
4. Hversu háar fjárhæðir hafa íslensk félagasamtök á málefnasviði ráðherra samtals fengið úthlutað úr sjóðum sem íslenska ríkið greiddi í fyrrgreint tímabil? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
5. Hvert var hlutfall framlaga úr slíkum erlendum sjóðum af heildartekjum félagasamtaka sem hafa haft þjónustu-, rekstrar- eða rammasamninga við ráðuneytið sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
6. Ef upplýsingar um heildartekjur liggja ekki fyrir hjá ráðuneytinu, hefur verið óskað eftir slíkum upplýsingum við gerð samninganna?
Skriflegt svar óskast.