Ferill 458. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 652  —  458. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd og búsetuúrræði.

Frá Rósu Guðbjartsdóttur.


     1.      Hvaða sveitarfélög hafa sinnt þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd á sl. fimm árum? Hvernig skiptist fjöldi umsækjenda á milli sveitarfélaga?
     2.      Hvernig verður þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd háttað eftir að samningum við sveitarfélög sem áður sinntu þjónustunni hefur verið sagt upp?
     3.      Hver eru áhrifin af uppsögn samninganna á skólagöngu, frístundir og tómstundir barna og á þjónustu við fatlaða úr hópi umsækjenda um alþjóðlega vernd?
     4.      Stendur til að byggja upp búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru stærri og geta hýst fleiri en verið hefur? Hvar eru slík búsetuúrræði fyrirhuguð og hvað er áætlað að margir geti dvalið þar?


Skriflegt svar óskast.