Ferill 386. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 654  —  386. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um heildarúttekt á þjónustu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvenær hófst vinna í ráðuneytinu við að rýna það sem fram kemur í heildarúttekt á þjónustu VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs er fjallað var um í skýrslu um málið sem kom út í október 2022?
     2.      Liggur fyrir einhver nánari greining ráðuneytisins á þeim ábendingum sem koma fram í skýrslunni?
     3.      Hefur átt sér stað samstarf milli ráðuneytisins og VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs varðandi þær ábendingar sem fram koma í skýrslunni?
     4.      Liggur fyrir úrbótaáætlun um hvernig skuli bregðast við og ef svo er, hvenær var hún kynnt og hvað felst í henni?


    Með bréfi ráðuneytisins til VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs, dags. 20. september 2023, óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum um til hvaða aðgerða sjóðurinn hefði gripið í kjölfar skýrslu nefndar um heildarúttekt á þjónustu VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs. Í svari VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs til ráðuneytisins, dags. 13. nóvember 2023, kom meðal annars fram að í kjölfar fyrrnefndrar skýrslu hafi farið fram umfangsmikil greiningarvinna hjá stjórnendum sjóðsins auk þess sem leitað hafi verið eftir ráðgjöf utanaðkomandi aðila. Í svari VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs til ráðuneytisins var einnig gerð grein fyrir sjónarmiðum sjóðsins hvað varðar þær ábendingar sem fram komu í framangreindri skýrslu.
    Í desember 2023 átti ráðuneytið fund með fulltrúum VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs þar sem farið var yfir þær ábendingar sem fram komu í ofangreindri skýrslu og þær aðgerðir sem sjóðurinn hafði þegar gripið til í því sambandi.
    Í ráðuneytinu er hafin vinna við endurskoðun á gildandi þjónustusamningi VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs og ráðuneytisins sem og á gildandi kröfulýsingu um starfsemi starfsendurhæfingarsjóða sem óska eftir viðurkenningu ráðherra á grundvelli laga nr. 60/2012, um atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða. Við framangreinda endurskoðun er gert ráð fyrir að meðal annars verði litið til þeirra ábendinga sem fram koma í skýrslu nefndar um heildarúttekt á þjónustu VIRK – Starfsendurhæfingarsjóðs.