Ferill 459. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 656 — 459. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um úrbætur vegna umferðarflæðis og umferðaröryggis í Grafarvogi.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að gerðar verði úrbætur vegna umferðarflæðis og umferðaröryggis frá Gullinbrú að Rimaflöt í Grafarvogi í samræmi við ákvæði samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, viðauka við hann og yfirlýsingu með viðauka um uppfærslu sáttmálans? Ef svo er, með hvaða hætti?
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að ráðist verði í aðgerðir til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda sem eiga leið um útivistarsvæðið við Gufunesbæ í Grafarvogi í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, viðauka við hann og yfirlýsingu með viðauka um uppfærslu sáttmálans? Ef svo er, með hvaða hætti?
3. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að öruggum, merktum og upplýstum gönguþverunum verði fjölgað í Grafarvogi til að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, m.a. við Langarima, Lokinhamra, Foldahverfi og atvinnusvæði við Gylfaflöt, í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, viðauka við hann og yfirlýsingu með viðauka um uppfærslu sáttmálans? Ef svo er, með hvaða hætti?
4. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að gerðar verði úrbætur vegna umferðarflæðis og umferðaröryggis að Egilshöll í Grafarvogi í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, viðauka við hann og yfirlýsingu með viðauka um uppfærslu sáttmálans? Ef svo er, með hvaða hætti?
5. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að gerðar verði úrbætur vegna umferðarflæðis og umferðaröryggis vegna gatnamóta við Höfðabakka (Bíldshöfða, Dvergshöfða og Stórhöfða) í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, viðauka við hann og yfirlýsingu með viðauka um uppfærslu sáttmálans? Ef svo er, með hvaða hætti?
Skriflegt svar óskast.