Ferill 460. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 657 — 460. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um þinglýsingar vegna viðskipta með strandveiðibáta.
Frá Ólafi Adolfssyni.
Hversu mörgum kaupsamningum var þinglýst á tímabilinu 1. janúar – 31. maí ár hvert árin 2019–2024 vegna viðskipta með strandveiðibáta eða lögaðila sem hefur verið lögskráður á fiskiskip?
Skriflegt svar óskast.