Ferill 311. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 745  —  311. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um stoðþjónustu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margir starfsmenn á vegum ráðuneytisins starfa við stoðþjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti, undirstofnunum þess og starfseiningum.
     2.      Að hve miklu leyti nýta viðkomandi einingar sér stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins?


Innviðaráðuneytið.
    Hjá ráðuneytinu starfa 38 starfsmenn á þremur skrifstofum sem eru skrifstofa samgangna, skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála og skrifstofa stefnumótunar og fjárlaga. Stoðþjónusta heyrir undir skrifstofu stefnumótunar og fjárlaga ásamt ýmsum öðrum verkefnum sem eru m.a. stefnumótun, fjárlagagerð, skjala- og gæðamál, aðstoð við ráðherra og ráðuneytisstjóra, stjórnsýsluúrskurðir, upplýsingamiðlun, mannauðsmál, innri rekstur o.fl. Á skrifstofu stefnumótunar og fjárlaga starfa 10 manns, þar af um 5 stöðugildi í stoðþjónustu. Það er þó erfitt að segja til um með nákvæmum hætti, þar sem verkefni starfsfólks falla oft bæði undir stoðþjónustu og önnur verkefni.
    Ráðuneytið nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslu ríkisins. Einnig notar ráðuneytið aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem þörf er á.

Fjarskiptastofa.
    Fjarskiptastofa hefur 4,7 stöðugildi í stoðþjónustu en útvistar því sem hægt er til FJS.
    Innan stofnunar er t.d. haldið utan um fjárreiður, bókhaldsgögn, samþykkt reikninga, álagningu gjalda, skil á gögnum til Fjársýslunnar, innkaup, samskipti við birgja, skjalavörslu, ferðapantanir og dagpeningagreiðslur, áætlanagerð, launagögn, mannauðs- og fræðslumál, vottuð gæðakerfi, vefsíðu- og kynningarmál og fleira þessu tengt.
    Fyrrgreindum verkefnum þarf að sinna innan stofnunarinnar og er ekki í boði að útvista.
Stofnunin nýtir sér þjónustu Fjársýslunnar á sviði bókhaldsþjónustu, greiðsluþjónustu, innheimtuþjónustu, uppgjörsþjónustu, mannauðsráðgjöf og launaþjónustu.

Vegagerðin.
    Vegagerðin hefur 39 stöðugildi í stoðþjónustu.
         Fjármáladeild: 9.
         Lögfræðideild: 3.
         Mannauðsdeild: 5.
         Fjármálasvið: 1.
         Rekstrardeild: 8.
         Umbótadeild: 5.
         Upplýsingatæknideild: 8.
    Fjöldinn miðast við verkefni sem eru ekki beintengd þjónustu- og eða framkvæmdaverkefnum.
    Vegagerðin nýtir sér þjónustu FJS þegar kemur að almennum opinberum innkaupum, samstæðuuppgjöri og gerð ársreiknings. Einnig er stofnunin í þjónustu hjá FJS þegar kemur að fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
    Enginn starfsmaður stofnunarinnar starfar við stoðþjónustu.
    RNSA nýtur bókhaldsaðstoðar hjá Fjársýslunni.

Samgöngustofa.
    Stoðþjónusta innan Samgöngustofu er skilgreind sem þjónusta sem styður við kjarnastarfsemi stofnunarinnar og tilheyrir ekki einstökum fagsviðum. Undir þessa skilgreiningu falla m.a. verkefni á sviði mannauðsmála, fjármála, upplýsingatækni, lögfræði, gæðamála og skjalamála. Á grundvelli innri gagna telst fjöldi stöðugilda í stoðþjónustu hjá Samgöngustofu vera 26.
    Samgöngustofa sinnir meginhluta stoðþjónustu innan stofnunarinnar en nýtir þó í tilteknum tilvikum þjónustu og stuðning frá Fjársýslu ríkisins. Fjársýslan annast meðal annars mánaðarlegar launagreiðslur fyrir stofnunina og les inn bókunarskjöl frá fjármáladeild. Þá útbýr Fjársýslan ársreikning stofnunarinnar og hefur jafnframt séð um framkvæmd við innheimtu stjórnvaldssekta sem Samgöngustofa hefur lagt á.

Byggðastofnun.
    Enginn starfsmaður Byggðastofnunar starfar við stoðþjónustu.
    Byggðastofnun nýtir sér ekki stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins.