Ferill 313. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 746  —  313. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um stoðþjónustu.


    Í svarinu er miðað við þá stoðþjónustu sem Fjársýsla ríkisins tilgreinir á vefsíðu sinni; bókhald, uppgjör, innheimtu- og greiðslustýringu, launaafgreiðslu og ráðgjöf á sviði mannauðsmála.

     1.      Hversu margir starfsmenn á vegum ráðuneytisins starfa við stoðþjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti, undirstofnunum þess og starfseiningum.

Stofnun Stöðugildi Fjöldi
Heilbrigðisráðuneyti 3 3
Sjúkratryggingar Íslands 5,53 6
Landlæknir 2 2
Lyfjastofnun
Geislavarnir ríkisins 1 1
Sjúkrahúsið á Akureyri 12,65 13
Landspítali 47,7 52
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu 18,3 19
Heilbrigðisstofnun Vesturlands 4,45 6
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 2,9 3
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands 4 4
Heilbrigðisstofnun Suðurlands 6,7 8
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 6 6
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands 1,5 2

     2.      Að hve miklu leyti nýta viðkomandi einingar sér stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins?
    Fjársýsla ríkisins sér um launagreiðslur fyrir ríkisstofnanir. Önnur þjónusta sem stofnanir nýta hjá Fjársýslunni er sem hér segir:

Stofnun Þjónusta hjá FJS
Heilbrigðisráðuneyti Stoðþjónusta á sviði bókhalds, launa- og kjaramála
Sjúkratryggingar Íslands Upplýsinga leitað eftir þörfum vegna bókhalds, kjaramála og mannauðsmála
Landlæknir Bókhalds- og launaþjónusta
Lyfjastofnun
Geislavarnir ríkisins Bókhald, uppgjör, innheimta, greiðslustýring, launaafgreiðsla, ráðgjöf á sviði mannauðsmála
Sjúkrahúsið á Akureyri Uppgjör og eignakerfi
Landspítali Leiðbeiningar og fræðsla til að tryggja samræmd vinnubrögð milli ríkisstofnana.
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu
Heilbrigðisstofnun Vesturlands Greiðsluþjónusta
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands Ráðgjöf á sviði mannauðsmála
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Greiðsluþjónusta
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Þjónusta vegna bókhalds, greiðslu- og fjárstýringar
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands HTÍ er í viðræðum við FJS um frekari þjónustu

    Svör bárust ekki frá Lyfjastofnun og Heilbrigðisstofnun Norðurlands þrátt fyrir ítrekanir.