Ferill 368. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 748 — 368. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini B Sæmundssyni um greiðslur til frjálsra félagasamtaka.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu háar fjárhæðir greiddi ráðuneytið til frjálsra félagasamtaka á hverju ári undanfarin átta ár?
2. Hvaða félagasamtök fengu á því tímabili styrki frá ráðuneytinu, bæði beina rekstrarstyrki og styrki til verkefna, og hver var upphæð hvers styrks?
Við samantekt var horft til fjárlagaliðanna 08-199.110 til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra og 08-399 heilbrigðismál, ýmis starfsemi. Við uppflettingu koma ekki fram færslur á lið 08-199.110 fyrir árin 2017 og 2018 og gæti það verið vegna þess að heilbrigðismál heyrðu þá undir velferðarráðuneyti. Hins vegar eru færslur vegna greiddra styrkja af lið 08-399 þessi tvö ár í kerfinu.
Í eftirfarandi töflu má sjá hversu háar fjárhæðir ráðuneytið greiddi til frjálsra félagasamtaka á árunum 2017–2024:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Í eftirfarandi töflum má sjá yfirlit yfir þau félagasamtök sem fengu annars vegar styrk af lið 08-199.110 til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra og hins vegar lið 08-399 heilbrigðismál, ýmis starfsemi:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.