Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 749 — 353. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga.
1. Telur ráðherra 28. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, ekki eiga við um allar skipanir í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga?
Ákvæði 28. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, á við um skipanir í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga.
2. Er fyrir hendi einhver sérstök undanþága frá þessari grein hvað varðar skipun í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar?
Ekki eru fyrir hendi sérstakar reglur eða undanþágur frá þessari grein hvað varðar skipun í einstaka stjórnir. Um það gilda almennar undantekningarreglur. Skal þetta útskýrt nánar.
Samkvæmt 1. mgr. 28. gr. skal við skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga þess gætt að hlutfall kvenna og karla sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða.
Í 2. mgr. kemur fram að tilnefna skuli bæði karl og konu en að tilnefningaraðila sé þó heimilt að víkja frá því þegar hlutlægar ástæður leiða til þess að það er ekki mögulegt. Skal tilnefningaraðili þá skýra ástæður þess. Í 3. mgr. kemur svo fram að skipunaraðila sé heimilt að víkja frá ákvæði 1. mgr. ef undanþáguheimild 2. mgr. á við. Í greinargerð með lögunum eru nefnd dæmi um slíkt, svo sem þegar um er að ræða félagasamtök þar sem félagsfólk er nær eingöngu af öðru kyninu. Sérfræðiþekking og/eða mikil reynsla í hlutaðeigandi málaflokki hefur einnig verið tekin gild eftir atvikum. Jafnréttisstofa leggur mat á það hvort undanþáguákvæði 2. mgr. 28. gr. hafi átt við í tilteknum tilvikum.
3. Hver innan Stjórnarráðs Íslands ber ábyrgð á því að ákvæðum jafnréttislaga sé framfylgt í störfum einstakra ráðherra eða ráðuneyta?
Samkvæmt stjórnskipan Íslands ber hver ráðherra ábyrgð á stjórnarframkvæmdum á sínu málefnasviði, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011. Skv. 27. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, skal í hverju ráðuneyti starfa jafnréttisfulltrúi sem hefur sérþekkingu á jafnrétti kynjanna. Jafnréttisfulltrúi fjallar um og hefur eftirlit með jafnréttisstarfi á málefnasviði viðkomandi ráðuneytis og stofnana þess. Jafnréttisfulltrúar ráðuneyta skulu árlega senda Jafnréttisstofu greinargerð um stöðu og þróun kynjajafnréttismála á málefnasviði viðkomandi ráðuneytis.
Jafnréttisstofa annast stjórnsýslu á sviði jafnréttismála, sbr. 3. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, og hefur eftirlit með framkvæmd jafnréttislaga, sbr. 4. gr. sömu laga. Eftirlit Jafnréttisstofu hvað 28. gr. varðar felst m.a. í því að Jafnréttisstofa óskar eftir upplýsingum um skipan í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneyta í greinargerð sem stofnunin birtir árlega. Jafnréttisstofa rýnir greinargerðirnar og óskar skýringa ef nefndir eru ekki skipaðar í samræmi við 28. laganna og metur hvort undanþáguákvæði í 2. mgr. hafi átt við í tilteknum tilvikum. 1
Dómsmálaráðuneytið fer með málaflokkinn er varðar jafnréttismál, sbr. forsetaúrskurð nr. 5/2025, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, þ.m.t. lög nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, og lög nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála.
1 Skýrsla Jafnréttisstofu um nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna árið 2023:
www.jafnretti.is/static/files/Utgefid_efni/skyrsla-nefndir-og-rad-2023.pdf