Ferill 196. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 751  —  196. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um erlenda ríkisborgara í fangelsum.


     1.      Hversu margir erlendir ríkisborgarar afplánuðu fangelsisdóm árið 2024 annars vegar og 15. mars 2025 hins vegar?
    Árið 2024 afplánaði að meðaltali 31 erlendur ríkisborgari fangelsisrefsingu á hverjum degi, en samtals hófu 218 erlendir ríkisborgarar afplánun eða gæsluvarðhald í fangelsi það ár. Hinn 15. mars 2025 voru 32 erlendir ríkisborgarar í afplánun í fangelsinu.

     2.      Hversu margir erlendir ríkisborgarar sátu í gæsluvarðhaldi árið 2024 annars vegar og 15. mars 2025 hins vegar?
    Árið 2024 sátu að meðaltali 28 erlendir ríkisborgarar í gæsluvarðhaldi á hverjum degi. Samtals hófu 208 erlendir ríkisborgarar gæsluvarðhald það ár og af þeim voru 63 í gæsluvarðhaldi á grundvelli útlendingalaga. Hinn 15. mars 2025 sátu 37 erlendir ríkisborgarar í gæsluvarðhaldi í fangelsi, þar af voru fjórir í gæsluvarðhaldi á grundvelli útlendingalaga.

     3.      Hvaða dag sátu flestir erlendir ríkisborgarar í gæsluvarðhaldi frá 1. janúar 2024 til 15. mars 2025 og hversu margir voru þeir þá?
    Þessar upplýsingar liggja ekki fyrir, en yfir allt árið voru 208 erlendir ríkisborgarar úrskurðaðir í gæsluvarðhald samanborið við 182 erlenda ríkisborgara árið áður. Á sama tíma fjölgaði úrskurðum einnig vegna íslenskra ríkisborgara, en árið 2024 voru 90 íslenskir ríkisborgarar úrskurðaðir í gæsluvarðhald samanborið við 59 árið 2023.

     4.      Hvert var hlutfall erlendra ríkisborgara af föngum árin 2024, 2019 og 2014?
    Árið 2024 voru erlendir ríkisborgarar 42% fanga í fangelsum, árið 2019 voru erlendir ríkisborgarar 21% og 14% árið 2014.