Ferill 329. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 771  —  329. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Snorra Mássyni um kostnað vegna jafnréttismála og kynjafræði.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver hefur verið árlegur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess frá árinu 2017 við þjónustu, ráðgjöf, stefnumótun og fræðslu sem útvistað hefur verið og tengist jafnréttismálum og kynjafræði? Svar óskast sundurliðað eftir viðtakendum greiðslna, tegund veittrar þjónustu og undirstofnunum sem í hlut eiga.

    Kostnaður ráðuneytisins vegna þjónustu, ráðgjafar, stefnumótunar og fræðslu á sviði jafnréttismála og kynjafræði er að stærstum hluta til kominn vegna jafnlaunavottunar sem er lögbundin skylda og liður í framkvæmd laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Þá skal það einnig tekið fram að á tímabilinu sem fyrirspurnin nær yfir hafa orðið breytingar á skipulagi stofnana ráðuneytisins þar sem ýmsar stofnanir voru lagðar niður og sameinuðust öðrum. Kostnaður stofnana sem lagðar voru niður var í sumum tilfellum tekinn beint úr bókhaldskerfi ríkisins (Orra) og reyndist því erfitt að sannreyna nákvæmni einstakra upphæða eða sundurliða þær í samræmi við fyrirspurnina. Á grundvelli þessa er hér að aftan gerð grein fyrir tiltækum upplýsingum um kostnað á tímabilinu 2017–2024, sundurliðaðan eftir því sem kostur er á:

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
Ár Viðtakandi Lýsing Tegund Kostnaður
2024 BSI á Íslandi ehf. Árgjald jafnlaunavottun Þjónusta 92.240
2024 BSI á Íslandi ehf. Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 133.300
2024 BSI á Íslandi ehf. Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 266.600
2023 BSI á Íslandi ehf. Árgjald jafnlaunavottun Þjónusta 94.240
2023 BSI á Íslandi ehf. Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 260.152
2023 Efla hf. Innri úttekt á jafnlaunavottun Þjónusta 174.530
2022 Háskóli Íslands Námskeið vegna #MeToo Fræðsla 31.200
2022 BSI á Íslandi ehf. Árgjald jafnlaunavottun Þjónusta 94.240
2022 BSI á Íslandi ehf. Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 257.672
2022 Efla hf. Innri úttekt á jafnlaunakerfi Þjónusta 150.586
2021 BSI á Íslandi ehf. Árgjald jafnlaunavottun Þjónusta 94.240
2021 BSI á Íslandi ehf. Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 247.504
2021 Efla hf. Innri úttekt á jafnlaunavottun Þjónusta 223.398
2020 BSI á Íslandi ehf. Árgjald jafnlaunavottun Þjónusta 94.240
2020 BSI á Íslandi ehf. Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 245.520
2020 Efla hf. Innri úttekt á jafnlaunakerfi Þjónusta 132.820
2019 BSI á Íslandi ehf. Árgjald jafnlaunavottun Þjónusta 94.240
2019 BSI á Íslandi ehf. Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 240.560
2018 BSI á Íslandi ehf. Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 234.360
2018 Efla hf. Innri úttekt á jafnlaunakerfi Þjónusta 295.295
2017 BSI á Íslandi ehf. Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 456.320
2017 BSI á Íslandi ehf. Forúttekt jafnlaunavottun Þjónusta 245.520

Íslenskar orkurannsóknir.
Ár Viðtakandi Lýsing Tegund Kostnaður
2017 Fræðslusetrið Jafnlaunakerfi – námskeið Fræðsla 29.000
2019 Versa vottun Jafnlaunakerfi – ráðgjöf Ráðgjöf 79.200
2020 iCert Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 422.500
2020 Attentus Jafnlaunakerfi – ráðgjöf Ráðgjöf 191.814
2021 iCert Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 70.000
2021 Attentus Jafnlaunakerfi – ráðgjöf Ráðgjöf 151.588
2022 iCert Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 170.000
2023 iCert Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 227.500
2023 Attentus Jafnlaunakerfi – ráðgjöf Ráðgjöf 133.875
2024 iCert Úttekt jafnlaunavottun Þjónusta 130.000

Landmælingar Íslands.*
Ár Viðtakandi Lýsing Tegund Kostnaður
2020 Versa vottun ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 232.657
2021 Versa vottun ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 268.506
2022 Versa vottun ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 196.450
2023 Versa vottun ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 207.600
* Landmælingar Íslands sameinuðust Náttúrufræðistofnun og Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn undir heitinu Náttúrufræðistofnun 1. júlí 2024.

Náttúrufræðistofnun Íslands.*
Ár Viðtakandi Lýsing Tegund Kostnaður
2019 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 275.900
2020 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 269.700
2021 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 198.400
2022 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 111.600
2023 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 378.200
2024 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 161.200
* Náttúrufræðistofnun Íslands sameinaðist Landmælingum Íslands og Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn undir heitinu Náttúrufræðistofnun 1. júlí 2024.

Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn.
    Enginn kostnaður féll til á tímabilinu sem spurt er um því stofnunin mætir ekki kröfum til jafnlaunavottunar sökum starfsmannafjölda.

Orkustofnun.*
Ár Viðtakandi Lýsing Tegund Kostnaður
2020 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 339.760
2021 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 680.264
2022 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 483.109
2023 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 354.392
2024 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 94.240
* Orkustofnun var lögð niður 31. desember 2024 og sameinaðist hluta Umhverfisstofnunar undir heitinu Umhverfis- og orkustofnun.

Stofnun Vilhjálms Stefánssonar.
    Enginn kostnaður féll til á tímabilinu sem spurt er um þar sem stofnunin mætir ekki kröfum jafnlaunavottunar sökum starfsmannafjölda. Stofnunin var lögð niður og sameinuð Háskólanum á Akureyri 1. janúar 2025.

Umhverfisstofnun.
Ár Viðtakandi Lýsing Tegund Kostnaður
2017 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 290.500
2019 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 486.356
2020 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 274.000
2021 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 548.600
2022 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 408.301
2023 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 365.900
2024* BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 481.200
* Umhverfisstofnun var lögð niður 31. desember 2024 og sameinaðist hluti stofnunarinnar Orkustofnun annars vegar undir heitinu Umhverfis- og orkustofnun og Vatnajökulsþjóðgarði hins vegar undir heitinu Náttúruverndarstofnun. Töluleg gögn Umhverfisstofnunar voru fengin úr bókhaldskerfi ríkisins (Orra).

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
    Enginn kostnaður féll til á tímabilinu sem spurt er um þar sem stofnunin mætir ekki kröfum um jafnlaunavottun sökum starfsmannafjölda.

Úrvinnslusjóður.
    Enginn kostnaður féll til á tímabilinu sem spurt er um þar sem stofnunin mætir ekki kröfum um jafnlaunavottun sökum starfsmannafjölda.

Vatnajökulsþjóðgarður.*
Ár Viðtakandi Lýsing Tegund Kostnaður
2019 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 145.000
2020 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 365.000
2021 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 181.600
2022 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 111.600
2023 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 305.000
2024 iCert ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 327.200
* Vatnajökulsþjóðgarður var lagður niður 31. desember 2024 og sameinaðist stofnunin hluta Umhverfisstofnunar undir heitinu Náttúruverndarstofnun.
Veðurstofa Íslands.
Ár Viðtakandi Lýsing Tegund Kostnaður
2019 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 582.202
2020 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 321.800
2021 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 324.200
2022 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 336.500
2023 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 339.500
2024 BSI á Íslandi ehf. Jafnlaunavottun Þjónusta 24.800