Ferill 437. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 783  —  437. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Adolfssyni um sölu dýralyfja.


     1.      Hvernig hefur ráðuneytið og Lyfjastofnun túlkað orðin „teljandi áhrif á fjárhagslega afkomu“ í 108. gr. lyfjalaga, nr. 100/2020?
    Hingað til hefur ekki reynt á túlkun heilbrigðisráðuneytisins eða Lyfjastofnunar en gera má ráð fyrir að slík mál yrðu metin með sjálfstæðu mati hverju sinni. Til upplýsingar þá býr Lyfjastofnun hvorki yfir upplýsingum um raunverulega eigendur þeirra fyrirtækja sem talin eru upp í ákvæðinu né hlutdeild þeirra starfsstétta sem ákvæðið snýr að. Þar sem að ekki er fjallað sérstaklega í lögum um eignarhaldsskráningu slíkra fyrirtækja myndi Lyfjastofnun einungis styðjast við þær upplýsingar sem liggja fyrir opinberlega í fyrirtækjaskrá sem starfrækt er af ríkisskattstjóra.

     2.      Eru einhver viðmið, hvort sem eru prósentuhlutföll eða fjárhæðir, um hvenær aðkoma lækna, þ.m.t. dýralækna, að lyfsölufyrirtækjum telst brot á ákvæðinu?
    Nei, sjá svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar. Ekki hefur reynt á beitingu ákvæðisins.

     3.      Hefur ákvæðinu verið beitt í eftirliti með starfi dýralækna eða verið notað til leiðbeiningar?
    Nei, ákvæðinu hefur ekki verið beitt í eftirliti með starfi dýralækna.

     4.      Hversu margir starfandi dýralæknar höfðu lyfsöluleyfi á ári hverju árin 2019–2024 og hversu margir þeirra störfuðu á höfuðborgarsvæðinu?
    Lyfsöluleyfi dýralækna voru ekki gefin út fyrir gildistöku lyfjalaga, nr. 100/2020, þann 1. janúar 2021. Dýralæknum hafði þar á undan verið veitt leyfi til lyfsölu samhliða leyfi til að stunda dýralækningar.
    Starfandi dýralæknar eftir gildistíma lyfjalaga, nr. 100/2020:
    2021 (árslok): 38 og þar af 11 með aðsetur starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
    2022 (árslok): 51 og þar af 16 með aðsetur starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
    2023 (árslok): 54 og þar af 18 með aðsetur starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
    2024 (árslok): 55 og þar af 18 með aðsetur starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.

     5.      Hver var heildarsala dýralækna á lyfjum á ári hverju árin 2019–2024 í krónum talið, annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar á landsvísu?
    Heildarsala árið 2021, samkvæmt gögnum Lyfjastofnunar, var 606.673.887 kr. Þar af var heildarsala á höfuðborgarsvæðinu 335.919.635 kr. hjá aðilum með skráð aðsetur starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
    Heildarsala árið 2022, samkvæmt gögnum Lyfjastofnunar, var 504.501.869 kr. Þar af var heildarsala á höfuðborgarsvæðinu 371.822.661 kr. hjá aðilum með skráð aðsetur starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
    Heildarsala árið 2023, samkvæmt gögnum Lyfjastofnunar, var 1.070.577.391 kr. Þar af 271.744.826 kr. hjá aðilum með skráð aðsetur starfsstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
    Ekki er búið að taka saman sölutölur fyrir árið 2024.

     6.      Hver var heildarsala dýralækna á dýralyfjum (í ATC-flokki Q) á ári hverju árin 2019– 2024, annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar á landsvísu?
    Lyfjastofnun er ekki með sundurliðuð gögn um sölutölur niður á ATC-flokka og því ekki unnt að veita þær upplýsingar sem óskað er eftir.

     7.      Hver var heildarsala dýralækna á lyfjum í öðrum ATC-flokkum en Q, þ.e. á mannalyfjum sem notuð eru fyrir dýr, á ári hverju árin 2019–2024?
    Lyfjastofnun er ekki með sundurliðuð gögn um sölutölur niður á ATC-flokka og því ekki unnt að veita þær upplýsingar sem óskað er eftir.

     8.      Hversu stóran hluta af heildarsölu lyfseðilsskyldra dýralyfja á ári hverju árin 2019– 2024 áttu lyfjabúðir annars vegar og dýralæknar með lyfsöluleyfi hins vegar?
    Lyfjastofnun býr ekki yfir sundurliðuðum gögnum til að unnt sé að veita upplýsingarnar.