Ferill 485. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.
Þingskjal 795 — 485. mál.
Breyttur texti.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um tekjur Vegagerðarinnar.
Frá Einari Jóhannesi Guðnasyni.
1. Hvaða tekjur á eftir að gjaldfæra til Vegagerðarinnar, sbr. tekjuliðinn „Tekjufærsla frestaðra tekna fyrri ára“ í ársreikningi Vegagerðarinnar, undanfarin fimm ár?
2. Hversu hátt hlutfall af kílómetragjaldi, bifreiðagjaldi, kolefnisgjaldi, vörugjaldi, eldsneytisgjaldi, þungaskatti, bensínskatti og virðisaukaskatti sem innheimtur hefur verið í tengslum við eldsneyti og bílakaup undanfarin fimm ár hefur runnið beint til Vegagerðarinnar?
Skriflegt svar óskast.