Ferill 487. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 810 — 487. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um útgjöld ríkissjóðs vegna efnahagsáfalla og náttúruvár.
Frá Njáli Trausta Friðbertssyni.
Hver hafa árleg heildarútgjöld ríkissjóðs verið vegna efnahagsáfalla annars vegar og náttúruvár hins vegar undanfarinn áratug? Svar óskast sundurliðað eftir a.m.k. eftirtöldum áföllum:
1. Gjaldþroti flugfélagsins WOW air árið 2019.
2. Covid-faraldrinum árin 2020–2021.
3. Innrás Rússlands í Úkraínu árið 2022.
4. Jarðhræringum í Grindavík frá árinu 2023.
5. Loðnubresti og öðrum aflabresti.
6. Öðrum efnahagsáföllum og náttúruvá.
Skriflegt svar óskast.