Ferill 489. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 814 — 489. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um lundaveiði.
Frá Sigurjóni Þórðarsyni.
1. Hversu stór hluti af lundaveiði er seldur til veitingahúsa? Með hvaða hætti er magnið metið og hefur sú sala breyst hlutfallslega undanfarin ár og áratugi?
2. Hversu stór er lundastofninn og hvernig hefur stofnstærðin sveiflast undanfarin 30 ár?
3. Hvert er veiðiálagið í prósentum af heildarstofnstærð?
4. Hefur verið lagt mat á menningarlegt gildi veiðanna, t.d. í eyjasamfélögunum í Grímsey og Vestmannaeyjum?
Skriflegt svar óskast.