Ferill 493. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 818  —  493. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um skattfrádrátt vegna styrkja til félaga á almannaheillaskrá.

Frá Hildi Sverrisdóttur.


     1.      Hver er heildarfjárhæð styrkja til félaga á almannaheillaskrá sem einstaklingar og lögaðilar hafa nýtt sem stofn til frádráttar frá skatti allt frá gildistöku laga nr. 32/2021, um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld? Svar óskast sundurliðað eftir árum og félagi.
     2.      Hver er heildarfjárhæð frádráttar frá skatti sem einstaklingar hafa fengið samþykktan á sama grundvelli? Svar óskast sundurliðað eftir árum, kyni og aldri.
     3.      Hver er heildarfjárhæð frádráttar frá skatti sem lögaðilar hafa fengið samþykktan á sama grundvelli? Svar óskast sundurliðað eftir árum.


Skriflegt svar óskast.