Ferill 455. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 820 — 455. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Jóni Pétri Zimsen um samninga við félagasamtök.
Við vinnslu svarsins leitaði fjármála- og efnahagsráðuneytið til fimm undirstofnana sinna varðandi upplýsingar og gögn í tengslum við fyrirspurnina.
1. Hvaða félagasamtök höfðu í gildi þjónustu-, rekstrar- eða rammasamning við ráðuneytið eða stofnanir þess sl. 10 ár og hver var fjárhæð greiðslna úr ríkissjóði til þessara félaga á grundvelli slíkra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi, eðli samnings og ári.
Á síðastliðnum 10 árum hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið eingöngu verið með í gildi einn samning við hagsmunasamtökin Fjölís en sá samningur felur í sér heimild til ljósritunar, skönnunar, rafrænnar eftirgerðar og annarrar hliðstæðrar eftirgerðar verka sem njóta höfundaréttarverndar til afnota fyrir ríkisaðila í A- og B- hluta. Samningurinn er ekki lengur í gildi. Greiðslur samkvæmt samningnum á tímabilinu koma fram í eftirfarandi töflu, fjárhæðir eru í m.kr.
| 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2024 |
| 9,3 | 9,4 | 9,4 | 9,7 | 0 | 20,3 | 10,3 | 11,0 | 11,5 |
Í svörum frá Fjársýslu ríkisins, Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum, Skattinum, Umbru – þjónustumiðstöð stjórnarráðsins og yfirskattanefnd kom fram að engir þjónustu-, rekstrar- eða rammasamningar hefðu verið gerðir við félagasamtök sl. 10 ár.
2. Hverjar voru heildartekjur hvers félags sem um ræðir í 1. tölul. á sama tímabili og hvert var hlutfall samningsbundinna framlaga úr ríkissjóði af tekjum hvers þeirra á grundvelli umræddra samninga? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ekki í höndum viðeigandi upplýsingar til að unnt sé að svara þessum tölulið fyrirspurnarinnar er snýr að fyrrgreindum samningi við Fjölís.
3. Í hvaða erlenda styrktarsjóði, sem félagasamtök á Íslandi geta sótt um styrki úr, á málefnasviði ráðherra greiðir íslenska ríkið og hver var fjárhæð framlags Íslands í hvern þessara sjóða sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
4. Hversu háar fjárhæðir hafa íslensk félagasamtök á málefnasviði ráðherra samtals fengið úthlutað úr sjóðum sem íslenska ríkið greiddi í fyrrgreint tímabil? Svar óskast sundurliðað eftir sjóði og ári.
5. Hvert var hlutfall framlaga úr slíkum erlendum sjóðum af heildartekjum félagasamtaka sem hafa haft þjónustu-, rekstrar- eða rammasamninga við ráðuneytið eða stofnanir þess sl. 10 ár? Svar óskast sundurliðað eftir félagi og ári.
6. Ef upplýsingar um heildartekjur liggja ekki fyrir hjá ráðuneytinu, hefur verið óskað eftir slíkum upplýsingum við gerð samninganna?
3.–6. tölul. fyrirspurnarinnar eiga ekki við um fjármála- og efnahagsráðuneytið né undirstofnanir þess.