Ferill 93. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 93 — 93. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um auglýsingasölu RÚV.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hyggst ráðherra bregðast við tillögum starfshóps um málefni Ríkisútvarpsins hvað varðar veru RÚV á auglýsingamarkaði og takmörk á sölu RÚV á auglýsingum?
2. Var vinnuhópur skipaður um nánari útfærslu á tillögum fyrrnefnds starfshóps? Ef svo er, hverjar voru niðurstöðurnar?
3. Hyggst ráðherra bregðast við veru RÚV á auglýsingamarkaði?
4. Hyggst ráðherra bregðast við aukinni auglýsingasölu RÚV þrátt fyrir markmið um minni umsvif RÚV á auglýsingamarkaði samkvæmt þjónustusamningi?
5. Hvernig samræmist aukin auglýsingasala RÚV árið 2024 markmiðum um minni umsvif RÚV á auglýsingamarkaði?
Skriflegt svar óskast.