Ferill 354. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1003 — 354. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um fjármuni til loftslagsmála.
Fyrirspurnin var send á undirstofnanir ráðuneytisins og byggjast upplýsingar í töflunum á svörum frá þeim. Allar upphæðir í töflunum eru í þúsundum króna.
1. Hversu miklu fé hefur verið varið árlega til loftslagsmála á vegum ráðuneytisins á árunum 2017 til og með nóvember 2025, sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum?
Sjá svar við 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
2. Til hvaða verkefna hafa þessir fjármunir runnið á umræddu tímabili? Þess er óskað að verkefnum verði skipt niður eftir: a) skattstyrkjum, b) aðgerðum í samgöngum, c) aðgerðum í landbúnaði, d) öðrum beinum aðgerðum, svo sem styrkveitingum og kaupum á þjónustu einkaaðila, svo sem fyrirtækja, einstaklinga og félagasamtaka.
Innviðaráðuneyti tók til starfa þann 1. febrúar 2022 og miðast svar ráðuneytisins við það.
| Innviðaráðuneyti | |||||||||
| Fjármunum varið árlega til loftslagsmála* í þús. kr. | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 |
2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Skattstyrkir | |||||||||
| Landbúnaður | |||||||||
| Samgöngur | 1.160 | 1.567 | 1.179 | 1.860 | |||||
| Aðrar aðgerðir | 78 | 58 | 77 | ||||||
| Samtals | 1.238 | 1.625 | 1.856 | 1.860 |
| Fjarskiptastofa | |||||||||
| Fjármunum varið árlega til loftslagsmála* í þús. kr. | 2017 | 2018 |
2019 | 2020 |
2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Skattstyrkir | |||||||||
| Landbúnaður | |||||||||
| Samgöngur | 650 | 650 | 650 | 650 | 650 | 1.560 | 1.320 | ||
| Aðrar aðgerðir | 37 | 69 | 267 | 632 | |||||
| Samtals | 650 | 650 | 650 | 687 | 719 | 1.827 | 1.952 |
| Samgöngustofa | |||||||||
| Fjármunum varið árlega til loftslagsmála* í þús. kr. | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Skattstyrkir | |||||||||
| Landbúnaður | |||||||||
| Samgöngur | 1.228 | 2.256 | 2.049 | 2.287 | 1.059 | 836 | 2.958 | 2.595 | 2.681 |
| Aðrar aðgerðir | |||||||||
| Samtals | 1.228 | 2.256 | 2.049 | 2.287 | 1.059 | 836 | 2.958 | 2.595 | 2.681 |
| Vegagerðin | |||||||||
| Fjármunum varið árlega til loftslagsmála* í þús. kr. | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 |
2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 |
| Skattstyrkir | |||||||||
| Landbúnaður | |||||||||
| Samgöngur | 505.930 | 95.349 | 341.953 | 20.329 | 10.169 | 162.072 | 137.925 | 128.313 | 324.189 |
| Aðrar aðgerðir | 25 | 4.370 | 1.974 | 2.185 | |||||
| Samtals | 505.930 | 95.349 | 341.953 | 20.354 | 10.169 | 162.072 | 142.295 | 130.287 | 326.374 |
3. Hvaða mælingar liggja fyrir um árangur af framangreindri ráðstöfun opinbers fjár?
Með tilkomu Herjólfs IV hefur útblástur koltvísýrings lækkað umtalsvert og er útreiknuð minnkuð koltvísýringslosun Herjólfs eftirfarandi fyrir árin 2021–2024:
| 2021 | 682 tonn |
| 2022 | 600 tonn |
| 2023 | 546 tonn |
| 2024 | 741 tonn |
Varðandi mælingar um árangur er að öðru leyti vísað til svars umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.
4. Hverjir eru helstu viðtakendur umræddra fjármuna á verkefnasviði ráðuneytisins? Óskað er eftir upplýsingum um greiðslur yfir 500 þús. kr. og fyrir hvað var greitt.
Klappir grænar lausnir hf. vegna hugbúnaðarþróunar fyrir Vegagerðina. Aðrar greiðslur yfir tilgreindum mörkum eru vegna rafvæðingar Herjólfs og uppsetningar á hleðsluturnum í Landeyjarhöfn og Vestmannaeyjum.