Ferill 589. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1005 — 589. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um fjölgun ferða í Loftbrú.
Flm.: Þorgrímur Sigmundsson.
Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að hefja vinnu við breytingu á Loftbrú þannig að ferðum verði fjölgað úr þremur ferðum í sex ferðir til og frá Reykjavík (tólf flugleggir) á ári fyrir börn sem ferðast þurfa á milli landshluta til foreldra/forráðamanna.
Greinargerð.
Nú er það þannig að hver einstaklingur getur fengið lægri fargjöld fyrir allt að þrjár ferðir til og frá Reykjavík á ári (sex flugleggir) á ári. Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að innviðaráðherra hefji vinnu við að fjölga ferðum upp í sex ferðir til og frá Reykjavík á ári (tólf flugleggir) fyrir börn sem ferðast þurfa á milli landshluta til foreldra/forráðamanna. Með því er komið til móts við t.d. börn með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu sem eiga foreldra eða forráðamenn búsetta á landsbyggðinni og öfugt. Í raun er þetta mikið réttlætismál þar sem flugfargjöld eru dýr og þrjár ferðir á ári eru fljótar að klárast hjá börnum sem ferðast reglulega til foreldra/forráðamanna í öðrum landshluta.