Ferill 468. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1008 — 468. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um mannauðsmál.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu mörg stöðugildi eru nú í mannauðsmálum í ráðuneytinu?
2. Hvernig hefur þróunin verið í fjölda stöðugilda er sinna mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
3. Hefur ráðuneytið keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála árin 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum.
4. Hefur ráðuneytið gert samninga við fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026? Ef svo er, hvernig fór samningaferlið fram? Hafa samningar verið boðnir út? Hvaða fyrirtæki/rekstraraðilar sinna slíku fyrir ráðuneytið?
5. Hver hefur kostnaður vegna fyrrgreindrar þjónustu eða ráðgjafar verið á árunum 2016– 2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum/rekstraraðilum.
Í mannauðsmálum ráðuneytisins eru nú fimm stöðugildi. Árið 2017 var stöðugildum fjölgað úr tveimur í þrjú og svo í fjögur árið 2022. Þá fjölgun má rekja til áherslubreytinga innan ráðuneytisins er varða faglegra utanumhald í mannauðsmálum, aukna símenntun og breyttar áherslur til að auka starfsánægju. Árið 2023 fjölgaði stöðugildum í fimm, en þær breytingar má rekja til þess að verkefni sem áður var sinnt af öðrum skrifstofum voru færð til mannauðsdeildar ráðuneytisins.
Á árunum 2016–2026 hefur ráðuneytið gert samninga við tvö fyrirtæki um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála. Annars vegar við Auðnast ehf. vegna almennrar heilsu- og mannauðsráðgjafar og hins vegar við Goðhól ehf. vegna jafnlaunavottunar. Samningarnir voru ekki boðnir út, enda upphæðir samninganna undir útboðsskyldu.
Kostnað ráðuneytisins vegna sérfræðiráðgjafar og -þjónustu á sviði mannauðsmála, sundurliðað eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum, má sjá í meðfylgjandi töflu.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.