Ferill 486. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1013 — 486. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um varnar- og öryggismál.
1. Hversu margir starfsmenn utanríkisþjónustunnar, bæði á aðalskrifstofu ráðuneytisins og á sendiskrifstofum, unnu að skýrslu samráðshóps þingmanna um inntak og áherslur stefnu í varnar- og öryggismálum?
Í skipunarbréfi vegna samráðshóps kemur fram að utanríkisráðuneytið haldi utan um vinnu við gerð stefnunnar í samstarfi við dómsmálaráðuneytið og viðeigandi stofnanir. Þrír sérfræðingar unnu með og studdu við vinnu þingmannahópsins auk þess sem starfsfólk utanríkisráðuneytis, dómsmálaráðuneytis og undirstofnana átti aðkomu að vinnunni á mismunandi stigum. Starfsfólk fastanefndar Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu og sendiráðs Íslands í Brussel kom að skipulagi heimsóknar þingmannahópsins til Brussel.
2. Hver varð heildarlengd vinnutíma sem nefndir starfsmenn vörðu í skýrsluna?
Ekki var sérstaklega haldið utan um tíma starfsfólk í tengslum við skýrsluna enda hluti af almennum störfum í ráðuneytinu.
3. Var greitt fyrir utanaðkomandi ráðgjöf eða þjónustu, innlenda eða erlenda, vegna skýrslunnar? Ef svo er, hver varð heildarkostnaður vegna hennar? Svar óskast sundurliðað eftir ráðgjöf og þjónustuveitendum.
Eingöngu var greitt fyrir umbrot og hönnun skýrslunnar, prófarkalestur og prentun, sjá hér að neðan.
| Prentkostnaður | 242.000 kr. |
| Umbrot, uppsetning og hönnun skýrslu | 569.170 kr. |
| Prófarkalestur | 35.000 kr. |
| Samtals | 846.170 kr. án vsk. |
4. Funduðu embættismenn í ráðuneytinu með aðilum utan þingmannahópsins og að honum fjarstöddum vegna skýrslunnar? Ef svo er, hvar og hvenær fóru fundir fram og hverjir sóttu þá?
Ekki voru haldnir sérstakir fundir um skýrsluna án þingmannahópsins en greint var frá framvindu vinnunnar og áherslum í samráði við innlenda viðbragðsaðila, sbr. svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.
5. Hver varð heildarkostnaður vegna skýrslunnar, að meðtalinni kynningu sem fór fram 12. september 2025? Svar óskast sundurliðað eftir kostnaðarliðum.
| Kostnaður vegna málþings 12. september 2025 | |
| Salur | 56.000 kr. |
| Kaffiveitingar | 61.050 kr. |
| Auglýsingar | 60.000 kr. |
| Streymi – tækniþjónusta | 144.000 kr. |
| Samtals | 321.050 kr. án vsk. |
| Prentkostnaður | 242.000 kr. |
| Umbrot, uppsetning og hönnun skýrslu | 569.170 kr. |
| Prófarkalestur | 35.000 kr. |
| Samtals | 846.170 kr. án vsk. |
| Heildarkostnaður | 1.167.220 kr. án vsk. |