Ferill 522. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1035 — 522. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um gögn á upplýsingavef um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Er úttekt Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á stöðu viðræðna Íslands og ESB frá 2014 ekki að finna á sérstökum upplýsingavef utanríkisráðuneytisins um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu? Ef ekki, af hverju ekki?
Jú. Umrædd skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, Úttekt á stöðu aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið og þróun sambandsins, frá árinu 2014, er meðal þeirra skjala sem birt hafa verið á upplýsingavef utanríkisráðuneytisins um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Markmið upplýsingavefsins er að veita almenningi upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að ESB og aðgang að gögnum tengdum aðildarviðræðunum sem fram fóru á árunum 2010 til 2013.