Ferill 471. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1036  —  471. mál.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um mannauðsmál.


     1.      Hversu mörg stöðugildi eru nú í mannauðsmálum í ráðuneytinu?
    Eitt stöðugildi í mannauðsmálum er í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.

     2.      Hvernig hefur þróunin verið í fjölda stöðugilda er sinna mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið var stofnað í mars 2025 á grunni menningar- og viðskiptaráðuneytis og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis sem voru stofnuð árið 2022. Í hvoru ráðuneyti fyrir sig var eitt stöðugildi mannauðsstjóra. Eftir uppstokkun ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands samkvæmt forsetaúrskurði sem gefinn var út árið 2025 er um eitt stöðugildi að ræða í nýju menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti.

     3.      Hefur ráðuneytið keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála árin 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum.
    Svar þetta miðast við þrjú framangreind ráðuneyti og nær því aftur til ársins 2022.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.





Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



                                  






     4.      Hefur ráðuneytið gert samninga við fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026? Ef svo er, hvernig fór samningaferlið fram? Hafa samningar verið boðnir út? Hvaða fyrirtæki/rekstraraðilar sinna slíku fyrir ráðuneytið?
    Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti var með samning við Vinnuvernd og síðar Heilsuvernd. Samningarnir voru ekki boðnir út en leitað var tilboða og skipt um þjónustuaðila. Þá gerði háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti samning við Goðhól vegna vinnu við jafnlaunavottun. Sá samningur var ekki boðinn út.
    Menningar- og viðskiptaráðuneyti var með samning við Auðnast. Þá var menningar- og viðskiptaráðuneyti með samning við iCert um vottunarúttekt.
    Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti tók við samningi háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis við Heilsuvernd sem er virkur.

     5.      Hver hefur kostnaður vegna fyrrgreindrar þjónustu eða ráðgjafar verið á árunum 2016– 2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum/rekstraraðilum.
    Sundurliðun á öllum kostnaði er að finna í töflum í svari við 3. tölul. fyrirspurnarinnar.