Ferill 502. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1037 — 502. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um kostnað o.fl. vegna krafna um eignarhald á landsvæðum utan strandlengju meginlandsins
1. Hver er heildarkostnaður ríkisins og óbyggðanefndar við landsvæði utan strandlengju meginlandsins (eyjar, hólmar, sker og drangar), sbr. 10. gr. a laga um þjóðlendur, nr. 58/1998? Óskað er eftir sundurliðuðum kostnaði við störf nefndarinnar, undirbúning, kröfugerð, lýsingu, auglýsingar, greinargerðir, málarekstur, úrskurðarvinnu og aðkeypta ráðgjöf og kostnaði annarra en ríkisins vegna hagsmunagæslu fyrir nefndinni.
Í eftirfarandi töflu eru upplýsingar um þann kostnað vegna svæðis 12 (eyja og skerja) hjá óbyggðanefnd sem er sérgreindur í bókhaldi nefndarinnar. Þar er um að ræða annan kostnað nefndarinnar vegna málsmeðferðar á svæðinu en laun starfsfólks og þóknanir nefndarmanna þar sem sá kostnaður er ekki sundurgreindur eftir málsmeðferðarsvæðum.
Þá er bent á að kröfugerð ríkisins er á forræði fjármála- og efnahagsráðherra og þar með kostnaður sem henni tengist. Því hefur forsætisráðherra ekki upplýsingar um þann kostnað, með einni undantekningu sem gerð er grein fyrir í neðanmálsgrein við töfluna.
Gjöld óbyggðanefndar vegna málsmeðferðar á svæði 12
1
|
Kr.
|
|
| Kortagerð | 8.990.408 |
| Gagnaöflun á Þjóðskjalasafni Íslands | 122.378.980 |
| Aðalmeðferð (salarleiga og veitingar) | 293.600 |
| Auglýsingar skv. 2. mgr. 10. gr. og 2. mgr. 18. gr. þjóðlendulaga | 64.702 |
| Úrskurðaður málskostnaður gagnaðila ríkisins skv. 1.–2. mgr. 17. gr. þjóðlendulaga | 103.425.000 |
| Endurgreiddur útlagður kostnaður lögmanna gagnaðila ríkisins | 1.459.524 |
| Samtals | 236.612.214 |
2. Hver er sundurliðaður heildarkostnaður, sbr. 1. tölul., við málarekstur ríkisins við kröfulýsingar vegna hluta Heimaeyjar og úteyja og skerja við Vestmannaeyjar um að þær yrðu þjóðlendur?
Þar sem kröfugerð ríkisins er á forræði fjármála- og efnahagsráðherra og þar með kostnaður sem henni tengist hefur forsætisráðherra ekki upplýsingar um þennan tölulið fyrirspurnarinnar.
3. Hversu langan tíma vann nefndin að málinu tengdu Vestmannaeyjum, hvenær hófst vinnan og hvenær lauk henni?
Vinna óbyggðanefndar sem tengdist Vestmannaeyjum var samofin vinnu við svæði 12 (eyjar og sker) í heild. Málsmeðferð óbyggðanefndar á svæði 12 hófst með bréfi til fjármála- og efnahagsráðherra, 19. apríl 2023, þar sem tilkynnt var ákvörðun nefndarinnar um að taka svæðið til meðferðar og ráðherra veittur frestur til að lýsa kröfum um þjóðlendur á svæðinu, væri um slíkar kröfur að ræða. Líkt og jafnan í þjóðlendumálum hófst rannsókn nefndarinnar síðan þegar kröfugerð ríkisins á svæðinu barst, sem í þessu tilviki var 2. febrúar 2024, og henni lauk 22. desember 2025 með uppkvaðningu úrskurða í málum nr. 1–2/2025.
Á áðurnefndu tímabili tók íslenska ríkið kröfugerð sína tvisvar til endurskoðunar en nánari upplýsingar um tímasetningar þar að lútandi og gang málsmeðferðarinnar er að finna í 2. kafla úrskurða óbyggðanefndar í málum nr. 1–2/2025 sem eru aðgengilegir á vefsíðu nefndarinnar, obyggdanefnd.is.
4. Var í framangreindum málum um einhvern kostnað að ræða sem úrskurðaður var skv. 3. mgr. 17. gr. laganna eins og hún var fyrir brottfall hennar?
Nei, óbyggðanefnd beitti aldrei því ákvæði.
1 Frá kostnaði við gagnaöflun hefur verið dregin hlutdeild fjármála- og efnahagsráðuneytis en samkvæmt samningi milli þess og óbyggðanefndar sem gilti frá og með 1. janúar 2023 endurgreiddi ráðuneytið nefndinni helming kostnaðar vegna vinnu Þjóðskjalasafns Íslands við gagnaöflun vegna þjóðlendumála fram að þeim tíma þegar kröfulýsing ráðherra f.h. ríkisins um þjóðlendur á viðkomandi svæði kom fram en þriðjung eftir það. Heildarkostnaður við gagnaöflun á Þjóðskjalasafni Íslands vegna svæðis 12 var 173.740.545 kr. en þar af var hlutdeild fjármála- og efnahagsráðuneytis 51.361.565 kr. frá og með árinu 2023 samkvæmt samningnum. Hluti heildarkostnaðarins var vegna almennrar undirbúningsvinnu sem fór að mestu leyti fram áður en samningurinn tók gildi en sú vinna varðaði ekki tiltekin landsvæði heldur sneri einkum að efnisskráningu ákveðinna gagnaflokka til að auðvelda þá kerfisbundnu gagnaöflun sem er hluti málsmeðferðar á hverju svæði.