Ferill 485. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1039  —  485. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um embættisbústaði.


     1.      Hver er fjöldi embættisbústaða fastafulltrúa/aðalræðismanna/sendiherra í utanríkisþjónustu Íslands og hvar eru þeir staðsettir?
    Embættisbústaðir fastafulltrúa, aðalræðismanna og sendiherra eru 27. Þeir eru staðsettir í eftirtöldum borgum: Berlín, Brussel (2), Freetown, Genf, Helsinki, Kampala, Kaupmannahöfn, Lílongve, Lundúnum, Madríd, New York, Nuuk, Nýju-Delí, Ósló, Ottawa, París, Peking, Róm, Stokkhólmi, Strassborg, Tókýó, Varsjá, Vín, Washington, Winnipeg og Þórshöfn.

     2.      Hver var heildarrekstrarkostnaður embættisbústaða Íslands á tímabilinu 2022–2025? Svar óskast sundurliðað eftir árum, bústöðum og rekstrarliðum.
    Heildarrekstrarkostnaður embættisbústaða Íslands á tímabilinu 2022–2025, sundurliðaður eftir árum, bústöðum og rekstrarliðum, kemur fram í töflu að aftan.

Heildarrekstrarkostnaður embættisbústaða
2022 2023 2024 2025
Sendiráð Íslands í Berlín 8.212.530 10.226.397 10.679.135 8.023.158
Rekstrarvörur 1.351.175 658.031 455.305 383.189
Aðkeypt þjónusta 1.788.141 2.794.746 2.565.156 1.476.080
Húsnæði 5.073.214 6.773.620 7.658.674 6.163.889
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn 6.246.814 6.735.163 10.309.819 7.811.871
Rekstrarvörur 210.353 343.151 1.100.088 375.117
Aðkeypt þjónusta 1.296.001 1.469.900 836.656 782.077
Húsnæði 4.740.460 4.922.112 8.373.075 6.654.677
Sendiráð Íslands í Lundúnum 52.986.828 43.781.582 5.947.221 3.135.719
Rekstrarvörur 99.826 258.607 196.850 250.065
Aðkeypt þjónusta 148.193 251.094 1.975.133 153.807
Húsnæði 52.738.809 43.271.881 3.775.238 2.731.847
Sendiráð Íslands í Moskvu 9.859.650 11.844.070 0 0
Rekstrarvörur 52.189 0 0 0
Aðkeypt þjónusta 40.528 0 0 0
Húsnæði 9.766.933 11.844.070 0 0
Sendiráð Íslands í Ósló 8.929.850 27.226.285 20.026.619 10.232.261
Rekstrarvörur 113.606 329.467 258.913 193.529
Aðkeypt þjónusta 730.377 17.775.190 6.050.981 3.478.620
Húsnæði 8.085.867 9.121.628 13.716.725 6.560.112
Sendiráð Íslands í París 4.637.436 5.362.430 9.067.862 9.345.142
Rekstrarvörur 19.269 26.020 93.215 364.541
Aðkeypt þjónusta 565.656 1.056.102 158.266 501.588
Húsnæði 4.052.511 4.280.308 8.816.381 8.479.013
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi 2.661.770 2.437.066 2.443.518 19.311.267
Rekstrarvörur 177.900 154.668 13.582 716.585
Aðkeypt þjónusta 522.207 896.137 492.381 4.252.084
Húsnæði 1.961.663 1.386.261 1.937.555 14.342.598
Sendiráð Íslands í Washington 6.910.379 4.229.909 8.253.385 6.958.262
Rekstrarvörur 609.035 623.225 1.763.915 1.468.303
Aðkeypt þjónusta 883.883 331.876 3.093.084 2.199.171
Húsnæði 5.417.461 3.274.808 3.396.386 3.290.788
Fastanefnd Íslands í New York 34.014.163 35.432.879 39.685.583 41.407.980
Rekstrarvörur 220.659 0 46.461 1.554.458
Aðkeypt þjónusta 0 10.877 263.105 563.813
Húsnæði 33.793.504 35.422.002 39.376.017 39.289.709
Sendiráð Íslands í Brussel 13.022.191 6.277.787 6.202.918 8.420.715
Rekstrarvörur 1.932.333 531.871 270.915 1.197.357
Aðkeypt þjónusta 3.378.121 813.525 688.083 1.305.238
Húsnæði 7.711.737 4.932.391 5.243.920 5.918.120
Fastanefnd Íslands hjá NATO 11.717.057 15.644.155 16.097.613 15.492.522
Rekstrarvörur 77.676 352.650 518.546 340.172
Aðkeypt þjónusta 163.430 591.406 664.781 547.651
Húsnæði 11.475.951 14.700.099 14.914.286 14.604.699
Fastanefnd Íslands í Genf 10.216.452 7.899.823 7.716.526 7.144.066
Rekstrarvörur 457.793 172.819 250.663 173.124
Aðkeypt þjónusta 631.318 359.405 319.756 323.138
Húsnæði 9.127.341 7.367.599 7.146.107 6.647.804
Sendiráð Íslands í Vín 6.518.469 8.653.878 10.125.200 13.364.112
Rekstrarvörur 100.094 44.375 74.284 438.254
Aðkeypt þjónusta 364.638 19.099 182.180 272.255
Húsnæði 6.053.737 8.590.404 9.868.736 12.653.603
Sendiráð Íslands í Peking 15.636.616 16.426.035 16.225.084 13.977.284
Rekstrarvörur 118.893 2.226 117.005 13.366
Aðkeypt þjónusta 91.614 5.915 43.819 123.612
Húsnæði 15.426.109 16.417.894 16.064.260 13.840.306
Sendiráð Íslands í Ottawa 5.450.633 3.278.099 3.315.451 17.369.867
Rekstrarvörur 625.846 754.637 460.358 999.614
Aðkeypt þjónusta 1.286.760 983.475 777.320 2.392.005
Húsnæði 3.538.027 1.539.987 2.077.773 13.978.248
Sendiráð Íslands í Tókýó 325.197 456.686 493.597 196.746
Rekstrarvörur 210.672 243.441 151.556 196.746
Aðkeypt þjónusta 107.578 0 151.776 0
Húsnæði 6.947 213.245 190.265 0
Sendiráð Íslands í Helsinki 17.647.140 18.809.452 21.737.503 22.032.002
Rekstrarvörur 693.783 20.547 106.540 105.086
Aðkeypt þjónusta 302.456 148.400 430.896 309.615
Húsnæði 16.650.901 18.640.505 21.200.067 21.617.301
Fastanefnd Íslands í Strassborg 4.648.500 7.015.302 8.022.273 8.745.306
Rekstrarvörur 176.010 294.284 0 511.906
Aðkeypt þjónusta 103.340 90.956 106.599 331.505
Húsnæði 4.369.150 6.630.062 7.915.674 7.901.895
Aðalræðisskrifstofan í New York 22.382.381 23.088.902 –87.687 0
Rekstrarvörur 108.031 0 0 0
Aðkeypt þjónusta 7.133 0 0 0
Húsnæði 22.267.217 23.088.902 –87.687 0
Aðalræðisskrifstofan í Winnipeg 10.184.377 9.548.406 7.604.662 9.092.460
Rekstrarvörur 61.522 134.221 96.998 59.365
Aðkeypt þjónusta 268.302 214.795 239.270 439.931
Húsnæði 9.854.553 9.199.390 7.268.394 8.593.164
Sendiráð Íslands í Róm 8.479.565 9.253.085 15.052.694 18.231.028
Rekstrarvörur 0 149.526 145.700 1.209.611
Aðkeypt þjónusta 0 0 668.985 313.133
Húsnæði 8.479.565 9.103.559 14.238.009 16.708.284
Sendiráð Íslands í Nýju-Delí 13.473.347 12.260.930 19.971.201 16.104.192
Rekstrarvörur 407.207 358.915 1.031.061 783.271
Aðkeypt þjónusta 1.166.072 1.122.329 2.395.450 821.695
Húsnæði 11.900.068 10.779.686 16.544.690 14.499.226
Aðalræðisskrifstofan í Þórshöfn 9.144.888 3.964.503 6.771.850 3.851.599
Rekstrarvörur 3.806.370 230.339 292.588 183.320
Aðkeypt þjónusta 2.306.408 842.047 650.495 537.183
Húsnæði 3.032.110 2.892.117 5.828.767 3.131.096
Aðalræðisskrifstofan í Nuuk 3.063.576 2.822.284 3.476.674 2.356.362
Rekstrarvörur 0 103.995 136.871 12.893
Aðkeypt þjónusta 275.406 308.102 902.054 231.283
Húsnæði 2.788.170 2.410.187 2.437.749 2.112.186
Sendiráð Íslands í Varsjá 4.067.819 10.638.061 12.318.464 12.530.163
Rekstrarvörur 427.519 357.703 237.139 359.170
Aðkeypt þjónusta 2.067.982 132.709 90.672 107.016
Húsnæði 1.572.318 10.147.649 11.990.653 12.063.977
Sendiráð Íslands í Madríd 0 0 0 16.801.766
Rekstrarvörur 0 0 0 197.003
Aðkeypt þjónusta 0 0 0 109.539
Húsnæði 0 0 0 16.495.224
Sendiráð Íslands í Lílongve 10.822.707 10.515.445 9.491.345 8.472.265
Rekstrarvörur 994.548 770.103 705.527 521.783
Aðkeypt þjónusta 2.575.419 2.579.113 970.001 2.159.702
Húsnæði 7.252.740 7.166.229 7.815.817 5.790.780
Sendiráð Íslands í Kampala 5.821.498 6.603.672 6.655.031 8.141.790
Rekstrarvörur 0 0 100.759 0
Aðkeypt þjónusta 0 0 438.230 0
Húsnæði 5.821.498 6.603.672 6.116.042 8.141.790
Sendiráð Íslands í Freetown 0 0 11.453.946 7.902.945
Rekstrarvörur 0 0 71.060 65.651
Aðkeypt þjónusta 0 0 3.200 27.358
Húsnæði 0 0 11.379.686 7.809.936

     3.      Hvaða embættisbústaðir eru í eigu íslenska ríkisins og hvert er fasteignamat þeirra?
    Alls eru 15 embættisbústaðir í eigu íslenska ríkisins. Sökum staðsetningar þeirra erlendis gilda um fasteignamat reglur viðkomandi gistiríkis. Þær eru í ákveðnum tilvikum frábrugðnar þeim reglum sem gilda um fasteignamat á Íslandi. Þá eru eignirnar undanþegnar opinberum gjöldum sökum úrlendisréttar samkvæmt alþjóðasamningum og sem slíkar því jafnan ekki andlag fasteignamats vegna álagningar fasteignaskatta. Taka svör ráðuneytisins mið af því.

Berlín.
    Ekkert opinbert fasteignamat liggur fyrir vegna úrlendisréttar. Markaðsmat fasteignasala frá hausti 2023 gaf meðaltalsfjárhæðina 7,35 millj. evra.

Brussel.
    Ekkert opinbert fasteignamat liggur fyrir en heildarkostnaður vegna kaupa og framkvæmda við núverandi embættisbústað nemur um 4.265.174 evrum. Ásett söluverð eldri embættisbústaðar sem er í söluferli er 2.350.000 evrur.

Genf.
    Ekkert opinbert fasteignamat liggur fyrir vegna úrlendisréttar en miðað við sölu sambærilegrar byggingar árið 2022 er varlega áætlað verðmæti embættisbústaðarins 4–5 millj. svissneskra franka.

Kaupmannahöfn.
    Fasteignamat fyrir árið 2023 nemur 34.726.000 dönskum krónum. Mat fyrir árin 2024– 2026 liggur ekki fyrir.

Lundúnir.
    Í Bretlandi er ekkert opinbert fasteignamat. Verð fasteigna ræðst því af markaði, þ.e.a.s. af framboði og eftirspurn, staðsetningu og gæðum eignarinnar, á þeim tíma þegar hún er seld. Núverandi bústaður var keyptur árið 2022 og var kaupverð eignarinnar 7.700.000 sterlingspund.

Nuuk.
    Á Grænlandi er ekki sambærilegt kerfi opinbers fasteignamats og fasteignaskatta líkt og á Íslandi. Verðmæti eigna ræðst af markaði eða mati fagmanna. Núverandi embættisbústaður var keyptur í árslok 2013 og nam kaupverðið þá alls 7.300.000 dönskum krónum.

Ósló.
    Fasteignamat núverandi embættisbústaðar er 26.807.883 norskar krónur en kaupverð hans nam 59.800.000 norskum krónum. Fasteignamat eldri embættisbústaðar, sem er í söluferli, er 39.765.474 norskar krónur en ásett söluverð er 69.000.000 norskra króna.

Ottawa.
    Áætlað verðmæti embættisbústaðarins árið 2025 er 3.409.000 kanadadalir.

París.
    Opinbert fasteignamat liggur ekki fyrir. Tvö óháð verðmöt fagaðila hljóða annars vegar upp á 3.859.100 evrur (vikmörk um 890.000 evrur) og hins vegar 4.436.900 evrur (vikmörk um 320.000 evrur).

Stokkhólmur.
    Fasteignamat embættisbústaðarins liggur ekki fyrir. Áætlað markaðsverðmæti bústaðarins samkvæmt fasteignasala er 65.000.000 sænskra króna (vikmörk 2 millj. sænskra króna).

Tókýó.
    Opinbert fasteignamat byggingarinnar samkvæmt þarlendum skattyfirvöldum er 85 millj. japanskra jena og fasteignamat lóðanna er 498 millj. japanskra jena (byggingin stendur á fjórum lóðum).

Washington.
    Fasteignamat ársins 2026 er 4.611.990 bandaríkjadalir.

Þórshöfn.
    Í borginni er ekkert opinbert fasteignamat en áætlað markaðsverð embættisbústaðarins samkvæmt mati fagaðila er 7–8 millj. danskra króna.

     4.      Hvaða embættisbústaðir eru leigðir og hver var ársleiga þeirra á tímabilinu 2022– 2025? Svar óskast sundurliðað eftir embættisbústöðum og árum.
    Í eftirfarandi borgum eru embættisbústaðir leigðir: Brussel (bústaður fastafulltrúa), Freetown, Helsinki, Kampala, Lílongve, Madríd, New York (bústaður fastafulltrúa), Nýju-Delí, Peking, Róm, Strassborg (bústaður fastafulltrúa), Varsjá, Vín og Winnipeg. Auk þess var á tímabilinu greidd leiga fyrir embættisbústað í Moskvu, fyrir bústað aðalræðismanns í New York og fyrir embættisbústað í Lundúnum.

Ársleiga embættisbústaða
2022 2023 2024 2025
Bústaður fastafulltrúa NATO 9.267.047 10.785.544 11.100.680 11.027.620
Embættisbústaður í Freetown 0 0 10.991.300 7.425.527
Embættisbústaður í Helsinki 15.850.492 16.848.133 19.692.591 19.759.043
Embættisbústaður í Kampala 5.821.498 6.603.672 6.116.042 8.141.790
Embættisbústaður í Lílongve 5.408.644 5.824.081 5.992.323 4.821.473
Embættisbústaður í Lundúnum 51.921.220 40.709.811 0 0
Embættisbústaður í Madríd 0 0 0 16.167.278
Bústaður fastafulltrúa í New York 32.229.005 34.507.301 36.983.415 36.740.420
Embættisbústaður í Nýju-Delí 10.546.462 9.382.408 15.123.186 13.367.340
Embættisbústaður í Peking 14.780.787 15.800.607 15.605.526 13.566.776
Embættisbústaður í Róm 8.350.090 8.727.880 13.109.657 16.370.400
Bústaður fastafulltrúa í Strassborg 3.101.630 3.368.141 3.501.728 5.135.001
Embættisbústaður í Varsjá 1.501.588 9.649.125 11.600.424 11.774.365
Embættisbústaður í Vín 5.668.217 7.362.713 8.412.547 10.251.762
Bústaður aðalræðismanns í Winnipeg 9.036.186 9.047.216 7.147.424 8.268.129
Embættisbústaður í Moskvu 9.706.723 11.834.781 0 0
Bústaður aðalræðismanns í New York 21.926.838 22.685.894 0 0

     5.      Hver hefur kostnaður við ráðgjöf og annar umsýslukostnaður við sölu og kaup embættisbústaða verið frá árinu 2022 til dagsins í dag? Svar óskast sundurliðað eftir embættisbústöðum og árum.
    Kostnaður við ráðgjöf og annar umsýslukostnaður við sölu, kaup og leit að hentugu húsnæði og vegna annarrar umsýslu féll til vegna endurnýjunar þriggja bústaða. Kostnaður við umsýslu vegna húsnæðisskipta í Lundúnum nam 115.400 sterlingspundum, í Brussel 54.907 evrum og í Ósló 184.560 norskum krónum.

     6.      Hafa einhverjir embættisbústaðir verið seldir frá árinu 2022 til dagsins í dag? Ef svo er, hverjir og hvert var söluandvirði þeirra?
                  a.      Hverjar eru ástæður sölu þessara eigna?
                  b.      Hvernig er menningarsagan varðveitt þegar bústaðir eru seldir sem hafa frá upphafi sinnt utanríkisþjónustu Íslands?

    Enginn embættisbústaður var seldur á þessu tímabili en tveir embættisbústaðir, í Ósló og Brussel, eru í söluferli.
    Ástæður sölu hafa jafnan verið mikil uppsöfnuð viðhaldsþörf svo og sú stefnuáhersla ráðuneytisins að fara úr dýrum og viðhaldsfrekum fasteignum yfir í íbúðir, þar sem þess er kostur, sem eru minni, öruggari og ódýrari í rekstri og viðhaldi.
    Við sölu embættisbústaða er jafnan leitast við að nýta áfram í nýja bústaðnum, að því marki sem hægt er, fyrirliggjandi húsbúnað og listmuni. Gert er ráð fyrir því að aðrir munir sem nýtast ekki en hafa menningarsögulegt gildi séu sendir heim til Íslands. Þá er miðað við að leitað sé ráðgjafar Þjóðminjasafns Íslands og annarra sérfræðistofnana ef uppi eru álitamál sem snúa að varðveislu menningarsögulegra þátta hvort sem þeir snúa að húsmunum eða byggingunni sjálfri.

     7.      Hafa embættisbústaðir verið keyptir frá árinu 2022 til dagsins í dag? Ef svo er, hvert var kaupverð þeirra, hvar eru þeir staðsettir og hvernig er staðsetning þeirra valin?
    Á þessu tímabili hafa verið keyptir embættisbústaðir í Bretlandi (kaupverð 7.700.000 sterlingspund), Noregi (kaupverð 59.800.000 norskar krónur) og Belgíu (kaupverð 4.265.174 evrur). Þeir eru staðsettir í höfuðborgum landanna líkt og venjan er í milliríkjasamskiptum. Val á staðsetningu embættisbústaða tekur einkum mið af fasteignaverði, hentugleika byggingarinnar undir starfsemi embættisbústaðar, nálægð við stjórnsýslu gistiríkis og af vegalengdum vegna ferðalaga til og frá vinnustað.

     8.      Stendur til að selja eða kaupa bústaði á næstunni?
    Ekki hefur verið tekin nein slík ákvörðun. Utanríkisráðuneyti hefur þó ávallt til skoðunar, í samræmi við stefnuáherslur sínar, að nýta þau tækifæri sem bjóðast til að fara úr dýrum og viðhaldsfrekum fasteignum yfir í íbúðir sem eru minni, öruggari og ódýrari í rekstri og viðhaldi.