Ferill 459. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1040  —  459. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um hagræðingu í ríkisrekstri.


     1.      Hversu mikil hagræðing hefur átt sér stað í ráðuneytinu nú þegar á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning sem skilað var 4. mars 2025? Í hverju felst hagræðingin, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
    Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar nýttust við forgangsröðun í fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 þar sem markmiðið var að ná fram aukinni skilvirkni og draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða opinbera þjónustu. Við undirbúning fjárlaga fyrir árið 2026 útfærði hvert ráðuneyti nánar hagræðingaraðgerðir innan fjárveitinga málaflokka sinna. Vísast um það til töflu í svari við 2. tölul.
    Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemina á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ríkisaðila í samræmi við þágildandi ársáætlanir á grundvelli fjárlaga fyrir það ár. Þar sem tillögurnar voru ekki samþættar inn í fjárlög fyrir árið 2025 liggur ekki fyrir hvaða hagræðing hafi náðst vegna tillagnanna á árinu 2025. Þrátt fyrir þetta nýttust tillögurnar til að koma ýmsum verkefnum af stað. Því hófu ráðuneyti og stofnanir strax vinnu við að innleiða mál, bæði sem ráðherra hafði lagt til en einnig í samræmi við tillögur hópsins eins og gerð er grein fyrir í skýrslu starfshóps forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis frá því í desember árið 2025.
    Dæmi um hagræðingarverkefni sem komin eru vel á veg eru þessi:
     *      Atvinnuvegaráðherra hefur þegar lokið umbótaverkefni með úttekt á starfsemi Hafrannsóknastofnunar og lagt fram frumvarp á Alþingi um breytingu á lögum um Hafrannsóknastofnun.
     *      Atvinnuvegaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi á Alþingi um sameiningu stofnananna Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Samræming eftirlits með matvælum mun einnig falla undir nýja stofnun.
     *      Aukin hagkvæmni og skilvirkni samkeppnissjóða er í vinnslu og tengist frumvarpi til laga um lagareldi sem nú er til umfjöllunar á Alþingi.

     2.      Hvaða hagræðing er áætluð vegna tillagnanna á þessu ári og í hverju felst sú hagræðing, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
    Hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar eru frá og með árinu 2026 samþættar ferli fjárlagagerðar og framkvæmdar fjárlaga og ber hvert ráðuneyti ábyrgð á því að innleiða hagræðingaraðgerðir innan þeirra málefnasviða sem það fer með. Á undirsíðunni Hagsýni í ríkisrekstri á vef Stjórnarráðsins er haldið utan um verkefni ráðuneyta sem tengjast hagræðingaraðgerðunum. Gert er ráð fyrir því að tvisvar á árinu 2026 verði birt yfirlit yfir stöðu verkefna á grundvelli tillagnanna. Þetta var síðast gert í september árið 2025 og birt á fyrrnefndri vefsíðu.
    Að aftan er yfirlit yfir það hvernig ráðuneytið útfærði hagræðingaraðgerðir í fjárlögum fyrir árið 2026. Við áætlanagerð ársins 2026 var stofnunum ætlað að laga starfsemi að fjárveitingum með markvissum aðhaldsráðstöfunum og forgangsröðun verkefna. Stofnanir hafa ekki verið beðnar um að halda utan um hagræðingu sem kemur beint í kjölfar tillagna hagræðingarhópsins og er því ekki unnt að svara til um áhrif tillagnanna á einstaka rekstrarliði. Hvað varðar aðalskrifstofu ráðuneytisins voru hagræðingaraðgerðirnar útfærðar með skipulagsbreytingum og starfsmannabreytingum.
    

Málaflokkur / stofnun

Upphæð í millj. kr.
12.10 Stjórnun landbúnaðarmála –34,9
04-234 Matvælastofnun –33,1
04-983 Ýmis stuðningur við landbúnað –1,8
12.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðarmálum –32,4
04-432 Matvælaöryggi –5,5
04-981 Ýmis framlög í landbúnaði –26,9
12.60 Stjórnsýsla atvinnuvegaráðuneytis –16,4
04-101 Atvinnuvegaráðuneyti, aðalskrifstofa –16,4
13.10 Stjórnun sjávarútvegs og fiskeldis –15,0
04-215 Fiskistofa –5,8
04-217 Verðlagsstofa skiptaverðs –0,3
04-844 Umhverfissjóður sjókvíaeldis –0,1
04-846 Fiskeldissjóður –0,3
04-998 Varasjóður málaflokka –8,5
13.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í sjávarútvegi –63,0
04-406 Hafrannsóknastofnun –47,9
04-982 Ýmis framlög í sjávarútvegi –3,0
04-998 Varasjóður málaflokka –12,1
14.10 Ferðaþjónusta –4,0
04-551 Ferðamálastofa –2,1
04-555 Framkvæmdasjóður ferðamannastaða –0,2
04-559 Ýmis ferðamál –1,7
16.10 Markaðseftirlit og neytendamál –2,8
04-190 Ýmis verkefni –0,4
04-238 Neytendastofa –0,2
04-246 Samkeppniseftirlitið –2,2
21.10 Háskólar og rannsóknastarfsemi –100,0
04-481 Rannsóknir háskóla í þágu landbúnaðar –100,0
Samtals –268,5