Ferill 470. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1041 — 470. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um mannauðsmál.
1. Hversu mörg stöðugildi eru nú í mannauðsmálum í ráðuneytinu?
Eitt stöðugildi sinnir mannauðsmálum í atvinnuvegaráðuneyti.
2. Hvernig hefur þróunin verið í fjölda stöðugilda er sinna mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Atvinnuvegaráðuneyti hefur starfað í núverandi mynd frá 15. mars 2025. Frá því í febrúar árið 2022 og fram til þess tíma starfaði það undir heitinu matvælaráðuneyti. Forveri þess var atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem var stærra að umfangi og starfaði undir stjórn tveggja ráðherra. Við breytingar árið 2022 voru málaflokkar sem áður heyrðu undir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra færðir frá ráðuneytinu til annarra ráðuneyta ásamt þeim starfsmönnum sem sinntu þeim. Með forsetaúrskurðum í desember árið 2024 og mars árið 2025 voru gerðar frekari breytingar á skipan ráðuneyta. Í kjölfar þeirra tók ráðuneytið við nýjum málefnum, þ.m.t. hluta þeirra málefna sem áður heyrðu undir ráðuneytið fyrir breytingar árið 2022.
Frá árinu 2016 hafa mannauðsmál að meginstefnu verið á forræði skrifstofustjóra sem annast fjármál, innri rekstur og þjónustu ráðuneytisins, auk þess sem stuðst hefur verið við aðkeypta sérfræðiráðgjöf á sviði mannauðsmála eftir þörfum.
Frá árinu 2019 kom skrifstofustjóri ásamt mannauðsfulltrúa, sem jafnframt sinnti gæðamálum, að mannauðsmálum. Háttaði svo fram til ársins 2022 þegar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti var skipt upp og heiti þess breytt í matvælaráðuneyti.
Í matvælaráðuneyti voru mannauðsmál á hendi mannauðsfulltrúa auk skrifstofustjóra. Starfstitillinn mannauðsstjóri var ekki tekinn upp fyrr en árið 2025 í kjölfar breytinga á skipan ráðuneyta og heyrir mannauðsstjóri undir skrifstofustjóra fjármála og innri þjónustu í atvinnuvegaráðuneyti. Þróun í fjölda stöðugilda í mannauðsmálum 2016–2019 má sjá í töflu að aftan.
| 2016 | 0,2 | 2020 | 0,5 | 2024 | 0,6 |
| 2017 | 0,2 | 2021 | 0,5 | 2025 | 1 |
| 2018 | 0,2 | 2022 | 0,5 | 2026 | 1 |
| 2019 | 0,5 | 2023 | 0,5 |
3. Hefur ráðuneytið keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála árin 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum.
Ráðuneytið hefur keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála. Vísast um það til nánari sundurliðunar eftir árum, fyrirtækjum og rekstraraðilum í töflu í svari við 5. tölul. fyrirspurnarinnar.
4. Hefur ráðuneytið gert samninga við fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026? Ef svo er, hvernig fór samningaferlið fram? Hafa samningar verið boðnir út? Hvaða fyrirtæki/rekstraraðilar sinna slíku fyrir ráðuneytið?
Já, ráðuneytið hefur á umræddu tímabili nýtt sér þjónustu og ráðgjöf á sviði mannauðsmála eftir þörfum hverju sinni. Þar sem heildarvirði umræddra samninga vegna kaupa á ráðgjöf og þjónustu á sviði mannauðsmála var undir viðmiðunarfjárhæðum um útboðsskyldu á grundvelli 23. gr. laga um opinber innkaup, nr. 120/2016, voru samningar ekki boðnir út. Við val á þjónustuaðilum var tekið mið af þörfum hverju sinni, sérþekkingu og þeim eiginleikum sem viðkomandi þjónusta og ráðgjöf þurfti að búa yfir.
Í töflu að aftan er yfirlit yfir þau fyrirtæki og rekstraraðila sem gerður var samningur við um þjónustu og ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026. Nánari sundurliðun má sjá í töflu í svari við 5. tölul. fyrirspurnarinnar.
| Fyrirtæki og rekstraraðilar |
| Attentus – mannauður og ráð ehf. |
| Auðnast ehf. |
| BSI á Íslandi ehf. |
| Capacent ehf. |
| Goðhóll ráðgjöf ehf. |
| iCert ehf. |
| Líf og sál sálfræðistofa ehf. |
| Mið ehf. |
| Prósent ehf. |
5. Hver hefur kostnaður vegna fyrrgreindrar þjónustu eða ráðgjafar verið á árunum 2016– 2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum/rekstraraðilum.
Í töflu að aftan er að finna sundurliðun á kostnaði vegna þjónustu og ráðgjafar á árunum 2016 til 2025. Kostnaður vegna mannauðsmála sem fallið hefur til árið 2026 er óverulegur og er því ekki tekinn með.
Undir liðnum Önnur ráðgjöf og þjónusta er tilgreindur kostnaður vegna greiðslu reikninga einstakra aðila vegna sálfræðiþjónustu.
Liðurinn Þóknun vegna setu í hæfnisnefnd tekur til greiðslu framlagðra reikninga einstakra rekstraraðila til greiðslu þóknunar vegna setu í hæfnisnefnd.
| Fyrirtæki og rekstraraðilar | 2016 | 2017 | 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | Samtals |
| Ráðgjöf og þjónusta | |||||||||||
| Attentus – mannauður og ráð ehf. | 72.369 | 689.000 | 145.750 | 460.000 | 1.367.119 | ||||||
| Auðnast ehf. | 185.000 | 793.500 | 1.626.100 | 1.940.000 | 170.000 | 4.714.600 | |||||
| Björt ráðgjöf ehf. | 170.000 | 170.000 | |||||||||
| Capacent ehf. | 223.550 | 223.550 | |||||||||
| Líf og sál sálfræðistofa ehf. | 1.711.400 | 286.900 | 57.000 | 2.976.000 | 233.000 | 351.000 | 5.615.300 | ||||
| Mið ehf. | 1.539.650 | 1.539.650 | |||||||||
| Prósent ehf. | 1.082.000 | 1.082.000 | |||||||||
| Vöxtur – mannauðsráðgjöf ehf. | 2.033.000 | 1.677.500 | 3.710.500 | ||||||||
| Önnur ráðgjöf og þjónusta | 72.000 | 13.000 | 85.000 | 54.000 | 224.000 | ||||||
| Ráðningar | |||||||||||
| Endemi ehf. | 539.328 | 539.328 | |||||||||
| Hagvangur ehf. | 200.000 | 200.000 | |||||||||
| STRÁ – starfsráðningar ehf. | 2.593.220 | 253.350 | 2.846.570 | ||||||||
| Vinnvinn ehf. | 1.040.400 | 1.069.300 | 2.109.700 | ||||||||
| Vöxtur – mannauðsráðgjöf ehf. | 386.688 | 386.688 | |||||||||
| Þóknun vegna setu í hæfnisnefnd | 2.227.200 | 366.336 | 257.334 | 2.850.870 | |||||||
| Jafnlaunavottun | |||||||||||
| BSI á Íslandi ehf. | 648.808 | 274.000 | 76.000 | 998.808 | |||||||
| Goðhóll ráðgjöf ehf. | 379.600 | 379.600 | |||||||||
| iCert ehf. | 725.000 | 158.125 | 883.125 | ||||||||
| Samtals | 6.925.420 | 1.762.869 | 3.884.000 | 1.290.708 | 782.550 | 2.961.852 | 2.029.184 | 5.956.400 | 2.657.300 | 1.591.125 | 29.841.408 |