Ferill 512. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1047 — 512. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Sigurjóni Þórðarsyni um umhverfiseftirlit.
1. Hversu oft framkvæmdi Umhverfis- og orkustofnun umhverfiseftirlit á árinu 2025 og hversu margar eftirlitsskýrslur frá því ári hafa verið eða verða birtar á vefsíðu stofnunarinnar?
Árið 2025 framkvæmdi Umhverfis- og orkustofnun 186 umhverfiseftirlit. Með umhverfiseftirliti er átt við mengunarvarnaeftirlit, líkt og það er skilgreint í 4. mgr. 3. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir. Allar eftirlitsskýrslur eru birtar á vef stofnunarinnar.
2. Hversu margar vettvangsferðir voru farnar vegna efnavörueftirlits af hálfu Umhverfis- og orkustofnunar á árinu 2025?
Árið 2025 fór Umhverfis- og orkustofnun í 16 vettvangsferðir vegna efnavörueftirlits samkvæmt efnalögum, nr. 61/2013. Fjöldi annars konar eftirlits samkvæmt efnalögum nam 64 og fjöldi vara sem farið var í eftirlit vegna nam 167.
3. Hversu mörg starfsleyfi voru auglýst af hálfu Umhverfis- og orkustofnunar á árinu 2025?
Árið 2025 voru 12 ný og breytt starfsleyfi auglýst hjá Umhverfis- og orkustofnun. Auk þess voru níu bráðabirgðaheimildir auglýstar samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.
4. Hversu mörg drög að starfsleyfum voru í vinnslu hjá Umhverfis- og orkustofnun á árinu 2025 og hversu mörg starfsleyfi voru gefin út það ár?
Árið 2025 var unnið í 33 starfsleyfum hjá Umhverfis- og orkustofnun. Gefin voru út 18 ný og breytt starfsleyfi hjá stofnuninni, auk þess sem níu bráðabirgðaheimildir voru gefnar út.
Samtals voru 85 erindi vegna leyfisveitinga afgreidd hjá stofnuninni. Þær leyfisveitingar eru af ýmsum toga, m.a. starfsleyfi og bráðabirgðaheimildir, samkvæmt lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, virkjunarleyfi og virkjunarleyfi til bráðabirgðar, samkvæmt raforkulögum, nr. 65/2003, rannsóknarleyfi og nýtingarleyfi samkvæmt lögum nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, og leyfi samkvæmt vatnalögum, nr. 15/1923.
Erindin sundurliðast þannig; 73 leyfi voru veitt, sex umsóknum um bráðabirgðaheimild var hafnað, tveimur umsóknum var vísað frá vegna ófullnægjandi gagna, þremur umsóknum um starfsleyfi var hafnað og eitt starfsleyfi var afturkallað.
5. Hverjar voru tekjur Umhverfis- og orkustofnunar af eftirliti og útgáfu starfsleyfa á árinu 2025?
Árið 2025 voru tekjur Umhverfis- og orkustofnunar vegna mengunareftirlits um 70 millj. kr. og vegna útgáfu starfsleyfa um 27,4 millj. kr.