Ferill 539. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1052  —  539. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um Gott að eldast.


     1.      Hver hefur framvindan verið í aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027, einnig þekkt undir nafninu Gott að eldast, frá því að mælaborð verkefnisins var síðast uppfært í nóvember 2024? Hvenær verður mælaborðið uppfært næst?
    Innleiðing aðgerðaáætlunar um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027, Gott að eldast, hefur verið unnin í samvinnu við þá aðila sem að einstökum aðgerðum koma. Mælaborðið varðandi stöðumat aðgerða var uppfært 31. mars síðastliðinn, sjá gottadeldast.is: Samkvæmt uppfærðu stöðumati er fimm aðgerðum lokið, það eru aðgerðir A.6, C.1, C.2, C.3 og D.2. Ellefu aðgerðir eru hafnar eða komnar vel á veg, það eru aðgerðir A.1, A.2, A.3, A.4, A.5, A.7, B.1, B.2, B.3, C.4 og D.1. Þrjár aðgerðir eru á byrjunarstigi, það eru aðgerðir E.1, E.2 og E.3.

     2.      Hvaða sveitarfélög, heilbrigðisstofnanir og aðrir aðilar eru eða hafa verið þátttakendur í verkefninu Gott að eldast frá því að Alþingi samþykkti þingsályktun um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027?
    Sumarið 2023 var auglýst eftir svæðum til að taka þátt í þróunarverkefnum um samþætta heimaþjónustu. Alls bárust 20 umsóknir og í september 2023 valdi valnefnd sex svæði, sem samanstanda af 22 sveitarfélögum og sex heilbrigðisstofnunum, til þátttöku: Heilbrigðisstofnun Austurlands, Fjarðabyggð og Múlaþing; Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Árborg, Hveragerði og Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili; Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Dalabyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Snæfellsbær, Stykkishólmsbær) og Húnaþing Vestra; Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Mosfellsbær, Kjalarnes, Kjós og Eir; Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og sveitarfélög á Vestfjörðum (Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupsstaður, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur og Súðavíkurhreppur); Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Dalvíkurbyggð og Dalbær.

     3.      Hver er afstaða ráðherra til verkefnisins Gott að eldast og hyggst ráðherra halda áfram innleiðingu aðgerðaáætlunarinnar á yfirstandandi kjörtímabili?
    Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að gera átak í málefnum eldra fólks, m.a. með verkefnum sem miða að aukinni fjárfestingu til að styrkja stoðir heilbrigðis- og öldrunarþjónustu um land allt, fjölgun hjúkrunarrýma og eflingu heimahjúkrunar. Með hliðsjón af stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, ásamt því að mæta þjónustuþörfum eldra fólks á viðeigandi þjónustustigi í stað innlagna á sjúkrahús, hafa ráðherrar félags- og heilbrigðismála sammælst um að leggja áherslu á áframhaldandi innleiðingu aðgerða í Gott að eldast með það að leiðarljósi að auka sjálfstæði og lífsgæði eldra fólks.

     4.      Hver hefur kostnaður verið við verkefnið Gott að eldast hingað til?
    Útgjöld félags- og húsnæðismálaráðuneytisins vegna aðgerðaáætlunarinnar námu samtals 261 millj. kr. árin 2023–2025. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur auk þess stutt við önnur verkefni á skyldum sviðum sem samrýmast áherslum í Gott að eldast sem snýr að heilbrigðri öldrun, heilsueflingu, bættu aðgengi að upplýsingum og ráðgjöf.

     5.      Eru aðgerðir og þróunarverkefni samkvæmt aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027 fjármögnuð í gildandi fjármálaáætlun?
    Aðgerðir og þróunarverkefni eru fjármögnuð í gildandi fjármálaáætlun.

     6.      Hvernig sér ráðherra fyrir sér framtíð verkefnisins Gott að eldast eftir að tímabil þingsályktunar um aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2023–2027 líður undir lok?
    Stefnt er að því að vinna nýja fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2028–2032.