Ferill 543. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1053 — 543. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um fjölda einstaklinga frá MENAP-löndum á örorku- og endurhæfingarlífeyri.
Í kjölfar breytinga á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, sem tóku gildi 1. september 2025, tóku svokallaðar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur við af endurhæfingarlífeyri og því miðast tölur í svari þessu vegna ársins 2025 við 31. ágúst það ár.
1. Hvað hafa margir einstaklingar frá MENAP-löndum (Miðausturlöndum, Norður-Afríku, Afganistan og Pakistan) fengið endurhæfingar- eða örorkulífeyri sl. tíu ár, sundurliðað eftir árum?
Í töflu 1 má sjá fjölda einstaklinga frá MENAP-löndum (Afganistan, Alsír, Barein, Egyptalandi, Írak, Íran, Ísrael, Jemen, Jórdaníu, Katar, Kúveit, Líbanon, Líbíu, Marokkó, Óman, Pakistan, Palestínu, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Sádi-Arabíu, Sýrlandi og Túnis) sem fengu greiddan endurhæfingar- eða örorkulífeyri á árunum 2016–2025.
| Tafla 1. | |
| Ár | Fjöldi einstaklinga sem fengu endurhæfingar- eða örorkulífeyri |
| 2016 | 93 |
| 2017 | 109 |
| 2018 | 129 |
| 2019 | 165 |
| 2020 | 197 |
| 2021 | 232 |
| 2022 | 268 |
| 2023 | 330 |
| 2024 | 406 |
| 2025 | 463 |
| Heimild: Tryggingastofnun. |
2. Hver er heildarfjárhæð slíkra lífeyrisgreiðslna og hvernig skiptast þær eftir kynjum og hver er meðalaldur einstaklinganna, sundurliðað eftir árum?
Í töflu 2 má sjá heildarfjárhæð endurhæfingar- og örorkulífeyrisgreiðslna til einstaklinga frá umræddum löndum á árunum 2016–2025 og hvernig sú fjárhæð skiptist milli kvenna og karla.
| Tafla 2. | |||
| Ár | Heildarfjárhæð | Karlar | Konur |
| 2016 | 228.221.830 | 126.773.681 | 101.448.149 |
| 2017 | 292.020.889 | 166.917.931 | 125.102.958 |
| 2018 | 357.446.220 | 198.992.043 | 158.454.177 |
| 2019 | 482.648.208 | 272.754.009 | 209.894.199 |
| 2020 | 604.734.350 | 339.979.102 | 264.755.248 |
| 2021 | 736.014.154 | 410.223.665 | 325.790.489 |
| 2022 | 927.908.418 | 526.649.273 | 401.259.145 |
| 2023 | 1.256.446.007 | 714.687.699 | 541.758.308 |
| 2024 | 1.717.576.062 | 959.160.631 | 758.415.431 |
| 2025 | 1.893.533.661 | 1.039.924.443 | 853.609.218 |
| Heimild: Tryggingastofnun. | |||
Í töflu 3 má sjá meðalaldur framangreindra einstaklinga á hverju ári á sama tímabili.
| Tafla 3. | |
| Ár | Meðalaldur |
| 2016 | 47,0 |
| 2017 | 47,2 |
| 2018 | 46,8 |
| 2019 | 46,4 |
| 2020 | 46,2 |
| 2021 | 46,6 |
| 2022 | 46,9 |
| 2023 | 45,9 |
| 2024 | 45,8 |
| 2025 | 47,1 |
| Heimild: Tryggingastofnun. | |
3. Hver er meðalfjárhæð slíkra lífeyrisgreiðslna til hvers einstaklings sl. tíu ár?
Í töflu 4 má sjá meðalfjárhæð endurhæfingar- og örorkulífeyrisgreiðslna til framangreindra einstaklinga á ári á tímabilinu 2016–2025.
| Tafla 4. | |
| Ár | Meðalfjárhæð endurhæfingar- og örorkulífeyrisgreiðslna |
|
2016
|
2.450.163 |
| 2017 | 2.675.002 |
| 2018 | 2.766.782 |
| 2019 | 2.922.565 |
| 2020 | 3.067.824 |
| 2021 | 3.169.268 |
| 2022 | 3.460.205 |
| 2023 | 3.805.472 |
| 2024 | 4.228.664 |
| 2025 | 4.072.323 |
| Heimild: Tryggingastofnun. | |
4. Hver er meðalaldur einstaklinganna á hverju ári sl. tíu ár?
Vísað er til töflu 3 í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar.