Ferill 477. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1056  —  477. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um mannauðsmál.


     1.      Hversu mörg stöðugildi eru nú í mannauðsmálum í ráðuneytinu?
    Í félags- og húsnæðismálaráðuneyti er eitt stöðugildi mannauðsmála.

     2.      Hvernig hefur þróunin verið í fjölda stöðugilda er sinna mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Árið 2019 tók félags- og barnamálaráðuneyti til starfa og þá var ekki stöðugildi í mannauðsmálum í ráðuneytinu. Frá árinu 2020 hefur verið eitt slíkt stöðugildi í ráðuneytinu.

     3.      Hefur ráðuneytið keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála árin 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum.
    Já, félags- og húsnæðismálaráðuneyti hefur keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála á árunum 2019–2026. Sjá nánari sundurliðun í svari við 5. lið fyrirspurnarinnar.

     4.      Hefur ráðuneytið gert samninga við fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026? Ef svo er, hvernig fór samningaferlið fram? Hafa samningar verið boðnir út? Hvaða fyrirtæki/rekstraraðilar sinna slíku fyrir ráðuneytið?
    Já, í slíkum tilvikum óskaði ráðuneytið eftir tilboðum í þjónustu og ráðgjöf og að mati loknu voru samningar gerðir. Ráðuneytið sá sjálft um samningagerðina enda fjárhæðirnar undir viðmiðunarfjárhæðum útboðsmála. Sjá einnig svar við 5. lið fyrirspurnarinnar.

     5.      Hver hefur kostnaður vegna fyrrgreindrar þjónustu eða ráðgjafar verið á árunum 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum/rekstraraðilum.
    Eftirfarandi tafla sýnir kostnað vegna þjónustu og ráðgjafar í mannauðsmálum hjá ráðuneytinu, einkum aðstoð við ráðningar, þ.e. kostnað vegna hæfnisnefnda. Einnig er til að mynda um að ræða sálfræði- og handleiðsluviðtöl, aðstoð vegna gæðaskjala jafnlaunakerfis og EKKO-ráðgjöf. Fjárhæðir eru með virðisaukaskatti og í þúsundum króna.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.