Ferill 465. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1060  —  465. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um hagræðingu í ríkisrekstri.


     1.      Hversu mikil hagræðing hefur átt sér stað í ráðuneytinu nú þegar á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning sem skilað var 4. mars 2025? Í hverju felst hagræðingin, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
    Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar nýttust við forgangsröðun í fjármálaáætlun 2026–2030, sem samþykkt var í júlí 2026, þar sem markmiðið var að ná fram aukinni skilvirkni og draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða opinbera þjónustu. Við undirbúning fjárlaga fyrir árið 2026 útfærði hvert ráðuneyti nánar hagræðingaraðgerðir innan fjárveitinga sinna málaflokka, sjá töflu hér á eftir.
    Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemi ráðuneytisins á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ríkisaðila í samræmi við fjárveitingar á grundvelli fjárlaga þess árs. Fjárlög 2025 gerðu ráð fyrir almennri hagræðingu upp á 2,2 milljarða kr. og sértækri hagræðingu upp á 8,2 milljarða kr. innan ársins. Þar sem Alþingi hafði þegar samþykkt fjárlög ársins 2025 höfðu tillögur hagræðingarhópsins ekki áhrif á fjárheimildir stofnana á því ári. Hins vegar nýttust tillögurnar til að koma ýmsum verkefnum af stað. Því fóru ráðuneyti og stofnanir strax í vinnu við að innleiða mál í samræmi við tillögur hópsins eins og gerð er grein fyrir í skýrslu starfshóps forsætis- og fjármála- og efnahagsráðuneytis frá því í desember 2025.
    Vinnuhópur um hagsýni í ríkisrekstri fékk það hlutverk að hafa yfirsýn yfir og framfylgja þeim hagræðingar- og umbótatillögum almennings sem ákveðið var að ráðast í. Líkt og tilgreint er í skýrslu hópsins frá því í nóvember 2025 hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið skilgreint 19 verkefni sem miða að því að skila virði fyrir samfélagið með aukinni hagræðingu og bættri þjónustu hins opinbera. Flest þessara verkefna ná yfir allt starfsumhverfi ríkisins en ekki eingöngu þau málefnasvið sem ráðuneytið fer með.
    Helstu verkefni eru:
          Einföldun á umhverfi opinberra samkeppnissjóða.
          Umbætur í starfsmannamálum ríkisins, þar á meðal með endurskoðun á starfsmannalögum og innleiðingu mannauðsstefnu ríkisins.
          Innleiðing þjónustu á Ísland.is og þróun á tæknisamstæðu grunnskráa til að tryggja betri nýtingu opinberra gagna.
          Áhersla á endurmat á útgjöldum.
          Bæting innri ferla ríkisins með ýmsum aðgerðum, svo sem að bæta nýtingu húsnæðis, auka skilvirkni í fjárstýringu og efla árangursmælingar í rekstri.
          Eftirlitsnefnd með viðbótar- og stuðningslánum var lögð niður í lok árs 2025.

     2.      Hvaða hagræðing er áætluð vegna tillagnanna á þessu ári og í hverju felst sú hagræðing, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
    Hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar eru frá og með árinu 2026 samþættar ferli fjárlagagerðar og framkvæmdar fjárlaga. Hvert ráðuneyti ber ábyrgð á að innleiða hagræðingaraðgerðir innan þeirra málefnasviða sem það fer með. Á vef Stjórnarráðsins, á undirsíðunni hagsýni í ríkisrekstri, er haldið utan um verkefni ráðuneyta sem tengjast hagræðingaraðgerðunum. Á árinu 2026 er gert ráð fyrir að öll ráðuneyti birti tvisvar yfir árið yfirlit yfir stöðu verkefna á grundvelli tillagnanna. Þetta var síðast gert í september 2025 og vísast í fyrrnefnda vefsíðu.
    Meðfylgjandi yfirlit sýnir hvernig fjármála- og efnahagsráðuneytið útfærði hagræðingaraðgerðir í fjárlögum 2026. Við áætlanagerð ársins 2026 var stofnunum ætlað að laga starfsemi að fjárveitingum með markvissum aðhaldsráðstöfunum og forgangsröðun verkefna. Stofnanir hafa ekki verið beðnar um að halda sérstaklega utan um hagræðingu sem kemur beint í kjölfar tillagna hagræðingarhópsins og er því ekki unnt að svara til um áhrif tillagnanna á einstaka rekstrarliði.
    Til viðbótar þeirri sértæku 2,1 milljarðs kr. hagræðingarkröfu sem gerð er grein fyrir hér á eftir var gerð almenn hagræðingarkrafa á verkefni á ábyrgðarsviði fjármála- og efnahagsráðuneytis á árinu 2026 sem nam 0,2 milljörðum kr. Þessi hagræðingarkrafa var sett í samræmi við markmið fjármálaáætlunar 2025–2029.

Fylgirit fjárlaga 2026

Ráðuneyti, málaflokkur og stofnun Hagræðing í millj. kr.
09 Fjármála- og efnahagsráðuneyti -2.095,6
05.10 Skattar og innheimta -123,9
    09-210 Skatturinn -49,6
    09-998 Varasjóðir málaflokka -74,3
05.20 Eignaumsýsla ríkisins -361,8
    09-901 Framkvæmdasýsla ríkisins -106
    09-981 Ýmsar fasteignir ríkissjóðs -250
    09-998 Varasjóðir málaflokka -5,8
05.30 Fjármálaumsýsla ríkisins -44,7
    09-103 Fjársýsla ríkisins -13,7
    09-980 Umbra -3
    09-998 Varasjóðir málaflokka -28
05.40 Stjórnsýsla ríkisfjármála -101,8
    09-101 Fjármála- og efnahagsráðuneyti, aðalskrifstofa -56
    09-190 Ýmis verkefni -6,4
    09-998 Varasjóðir málaflokka -39,4
34.10 Almennur varasjóður -1.463,4
    09-989 Almennur varasjóður -1.463,4