Ferill 610. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1062 — 610. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um rekstrarkostnað og arðsemismat.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
1. Hver er áætlaður rekstrarkostnaður almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2026 til ársins 2035?
2. Hver var rekstrarkostnaður Vegagerðarinnar árin 2015–2025 og hver er áætlaður rekstrarkostnaður 2026–2030?
3. Hver var rekstrarkostnaður Betri samgangna árin 2015–2025 og hver er áætlaður rekstrarkostnaður 2026–2030?
4. Hverjar voru helstu forsendur arðsemismatsins? Hér er átt við tekjur og gjöld, bæði á framkvæmdatíma og eftir að innviðir hafa verið byggðir.
Skriflegt svar óskast.