Ferill 611. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 1063 — 611. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins á framkvæmdatíma.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
1. Hvernig er gert ráð fyrir því að fjármagna þann mismun sem er á milli framlaga inn í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og þeirra greiðslna sem gert er ráð fyrir að inna þurfi af hendi samkvæmt framkvæmdaáætlun á framkvæmdatímanum 2025–2040?
2. Ef gert er ráð fyrir því að sá mismunur verði fjármagnaður með lántöku, hvaða kjörum er gert ráð fyrir varðandi fjármögnun?
3. Er gert ráð fyrir þessum mismun og kostnaði við fjármögnun hans í arðsemisútreikningum samgöngusáttmálans?
4. Er raunhæft að gera ráð fyrir framlagi vegna Keldnalands frá og með árinu 2028 og veggjöldum frá og með árinu 2030?
5. Hvaða mannvirki eiga að standa straum af tekjum af veggjöldum ársins 2029?
6. Hvaða áhrif hefur það á arðsemismatsútreikninga samgöngusáttmálans ef tafir verða á því að hægt verði að innheimta veggjöld af framkvæmdum?
Skriflegt svar óskast.