Ferill 612. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1064  —  612. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um rekstur samgöngumannvirkja og framlög til verkefna samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hvernig verður rekstri samgöngumannvirkja háttað að framkvæmdatíma samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins loknum?
     2.      Er gert ráð fyrir frekari framlögum frá ríki og/eða sveitarfélögum til að standa undir verkefnum í samgöngusáttmálanum en fram koma í þeirri áætlun sem kynnt hefur verið fyrir fjárlaganefnd Alþingis? Mun t.d. þurfa rekstrarfjármögnun vegna borgarlínu þegar fram í sækir vegna endurnýjunar vagna og þess háttar?
     3.      Er gert ráð fyrir slíkum framlögum við arðsemismat verkefnisins?

                                  
Skriflegt svar óskast.