Ferill 613. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 1065 — 613. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um veggjöld innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
1. Af hvaða framkvæmdum innan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins verða innheimt veggjöld af almenningi og hverjum ekki, ef einhverjum, miðað við áætlanir Betri samgangna um 143 milljarða kr. tekjur af veggjöldum, flýti- og umferðargjöldum?
2. Hvað er gert ráð fyrir að innheimta í gjöld fyrir hverja ekna ferð?
3. Er mismunandi gjald eftir mismunandi verkefnum í sáttmálanum? Mun þannig ferð í gegnum Miklubrautargöng kosta meira eða minna en t.d. ferð um Sæbrautarstokk?
4. Er í forsendum sáttmálans gert ráð fyrir að veggjöld innan höfuðborgarsvæðisins verði alls staðar þau sömu eða er gert ráð fyrir mismunandi gjaldtöku eftir hverfum eða bæjarhlutum?
5. Hvenær hyggst ráðherra leggja til að gjaldtakan verði rædd á Alþingi?
6. Hyggst ráðherra leggja til að Alþingi samþykki gjaldtökuna? Ef svo er ekki, hverjir eiga að taka ákvörðun um hana?
Skriflegt svar óskast.